IHM úthlutun vegna ársins 2025
SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda – auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK.
Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga allir sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndaverk sem sýnd hafa verið í sjónvarpi og á íslenskum streymisveitum á árinu 2025.
Athugið: Aðeins rétt út fylltar umsóknar verða afgreiddar
Vinsamlegast sendið umsóknir á:
SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
Borgartúni 35
108 Reykjavík
eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Engar aðrar leiðir umsókna verða teknar gildar
Umsóknarfrestur fyrir greiðslur úr IHM sjóði SÍK vegna 2025 er til 31. ágúst næstkomandi.
Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.
Greiðslur þessar eru bætur til kvikmyndaframleiðenda fyrir eintakagerð til einkanota á myndum þeirra, þegar þær eru sýndar í sjónvarpi á Íslandi.
Reglur um úthlutun eru aðgengilegar hér: Úhlutunarreglur IHM 2025
Umsóknareyðublað er að finna til hægri á úthlutunarsíðu fyrir árið 2025
Vinsamlegast athugið að það er mikilvægt að fylla umsóknareyðublaðið í samræmi við leiðbeiningar á fyrsta flipa og öðrum þeim upplýsingum sem beðið er um, til að tefja ekki fyrir úrvinnslu gagna. Vinsamlegast setjið lengd verka sem mínútur, ekki tímakóða format. Mikilvægt er einnig að setja inn banka og reikningsnúmer.
Til úthlutunar vegna ársins 2025 eru samtals 40.905.000 kr. Umsóknir fyrir þetta ár verða grundvöllur ef kemur til frekari úthlutunar fyrir árið 2025.

