Arnar Benjamín Kristjánsson, nýr formaður SÍK
Arnar Benjamín Kristjánsson nýr formaður SÍK
Aðalfundur Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, var haldinn í Húsi atvinnulífsins þann 18. júní. Á fundinum var Arnar Benjamín Kristjánsson kjörinn nýr formaður SÍK til næstu tveggja ára. Hann tekur við embættinu af Antoni Mána Svanssyni sem hefur gegnt formennsku undanfarin ár.
Í máli Antons Mána, sem fór yfir skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2025–2026, kom fram að staða íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu væri grafalvarleg. Samdráttur blasti við í greininni á sama tíma og erlendum þjónustuverkefnum og auglýsingaverkefnum hefði fækkað verulega. Benti hann á að einungis væri útlit fyrir örfáar íslenskar kvikmyndafrumsýningar á árinu 2026, sem mætti rekja til langvarandi þrenginga í fjármögnun Kvikmyndasjóðs.
Anton Máni reifaði helstu áherslur stjórnar í hagsmunagæslu á starfsárinu. Þar bar hæst vinnan við að tryggja framlengingu og samkeppnishæfni endurgreiðslukerfisins og að bregðast við breyttri túlkun Endurgreiðslunefndar á 80/20-reglunni, sem hefði valdið framleiðslufyrirtækjum verulegu fjárhagslegu tjóni og töfum.
Formannskjör fór fram til tveggja ára og bárust þrjú framboð; frá Arnari Benjamín Kristjánssyni, Grímar Jónssyni og Millu Ósk Magnúsdóttur. Arnar Benjamín hlaut flest atkvæði og var rétt kjörinn formaður. Þá var kosið um þrjú sæti meðstjórnenda til tveggja ára og bárust sjö framboð. Samkvæmt niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar voru þeir Anton Máni Svansson, Búi Baldvinsson og Hilmar Sigurðsson kjörnir í stjórn.
Gríðarleg fjölgun hefur orðið á aðildarfélögum SÍK á undanförnum árum og telur sambandið nú 74 fyrirtæki í dag. Til samanburðar voru aðildarfélögin 40 talsins árið 2025. Sýnir þessi mikli vöxtur þá grósku sem er í gangi og þann mikla áhuga sem ríkir á starfsemi félagsins sem og íslenskum kvikmyndaiðnaði í heild sinni.
Öll aðalfundargögn má finna á innri vef SÍK.

