IHM úthlutun vegna 2020

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda – auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK. 

Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga allir sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndaverk sem sýnd hafa verið í sjónvarpi á árinu 2020. Aðeins rétt út fylltar umsóknir verða afgreiddar. Vinsamlegast sendið umsóknir á:

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
c/o Samtök iðnaðarins
Borgartúni 35
105 Reykjavík

eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Engar aðrar leiðir umsókna verða teknar gildar!

Umsóknarfrestur fyrir greiðslur úr IHM sjóði SÍK er til 15. desember 2021. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Greiðslur þessar eru bætur til kvikmyndaframleiðenda fyrir upptökur á myndum þeirra, þegar þær eru sýndar í sjónvarpi á Íslandi. Reglur um úthlutun eru aðgengilegar hér.

Umsóknareyðublað er hér:

Vinsamlegast athugið að það er mikilvægt að fylla umsóknareyðublaðið út með öllum þeim upplýsingum sem beðið er um til að tefja ekki fyrir úrvinnslu gagna.

Til úthlutunar fyrir árið 2020 eru samtals 19.290.968 kr. Úrvinnsla umsókna er í höndum Project ehf. og áhorfstölur verða unnar í samráði við allar sjónvarpsstöðvarnar.

Þessi auglýsing birtist í Fréttablaðinu fimmtudaginn 18. nóvember 2020