Höfundaréttur
og skyld réttindi að kvikmyndum
EFTIR TÓMAS ÞORVALDSSON, HDL.
Þessari grein er ætlað að veita
almenna innsýn í höfundarétt. Síðar verður fjallað um skyld réttindi þ.e.
réttindi listflytjenda (leikara og tónlistarmanna), framleiðenda og
útvarps og sjónvarpsstöðva. Ennfremur verður tekið á því hvernig öll
ofangreind réttindi horfa við kvikmyndagerð. Í síðari greinum
verður einnig leitast við að skýra hvaða og hvernig samninga er nauðsynlegt að
gera til þess að mögulegt sé að sýna og dreifa kvikmynd með eðlilegum hætti.
Höfundaréttur –
almenn skilgreining
Höfundaréttur felur í sér einkarétt
höfundar til þess að ráðstafa verki sínu bæði gagnvart fjárhagslegum réttindum
og svokölluðum ófjárhagslegum réttindum.
Til þess að verk sé talið njóta verndar að höfundarétti þarf verkið að uppfylla
ákveðin skilyrði. Í íslenskum höfundarétti hefur verið miðað við að í
verki þurfi að koma fram andleg sköpun sem sé ný og sjálfstæð a.m.k. að
formi til. Þessi viðmiðum er augljóslega mjög óhlutlæg og allt mat í þessu
sambandi hlýtur að vera mjög afstætt. Í sem stystu máli má segja að á þessi
skilyrði reynir afar sjaldan gagnvart kvikmyndum sem verkum í skilningi höfundalaga
en kvikmyndir njóta verndar samkvæmt 2. mgr., 1. gr. höfundalaganna nr. 73/1972. Það er ennfremur skilyrði að verkið hafi
verið skapað, þ.e. verkið hafi tekið á sig eitthvert birtingarform
(tjáningarform) t.d. sem handrit eða filma. Þannig njóta hugmyndir, sem ekki
hafa verið settar fram með skriflegum eða öðrum áþreifanlegum hætti, ekki
verndar að höfundarétti.
Fjárhagsleg réttindi höfundar felast
einkum í einkarétti hans til þess að selja verk sitt og birta það með
einhverjum hætti (með flutningi, sýningu útgáfu) gegn greiðslu. Í þessu felst,
að engum öðrum aðila er heimilt að nýta verk höfundar í fjárhagslegum tilgangi
án þess að hafa fengið til þess sérstakt leyfi höfundarins með samningi, sem að
íslenskum rétti getur verið hvort heldur sem er munnlegur eða skriflegur. Í
þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að höfundaréttur er talinn til
eignaréttar samkvæmt fræðikerfi íslenskrar lögfræði. Ofangreindur fjárhagslegur
réttur höfundar er framseljanlegur og geta slík framsöl bæði verið í formi endanlegs
afsals eða takmarkaðs framsals t.d. hvað varða tímalengd og landsvæði.
Þegar talað er um ófjárhagsleg réttindi höfundar er átt við þau réttindi sem einnig
eru kölluð sæmdarréttur (alþjóðlega
heitið er “Droit Moral”, enskt heiti “Moral Rights”) og taka til þeirra réttinda
höfundar sem verja eiga sæmd hans, höfundaheiður
og höfundasérkenni. Nánar tiltekið
er skylt eftir því sem við á, að geta nafns höfundar á eintökum verks og þegar
það er birt (nafnbirtingaréttur, auðkenningarréttur). Ennfremur er óheimilt
að breyta verki höfundar eða birta með þeim hætti eða í því samhengi að skert
geti höfundaheiður hans eða
höfundarsérkenni. Réttindi þessi eru óframseljanleg nema í einstökum
tilvikum sem skýrt skulu tilgreind bæði hvað varðar tegund og efni. Sæmdarréttur höfunda á rót sína að rekja
til þess að höfundaréttur er einnig talinn til persónuréttar höfundarins, enda
eru verk hans sprottin af andlegri sköpun hans sem einstaklings. Eðli
höfundaréttar sem persónuréttar hefur einnig þá þýðingu að fyrirtæki, félög,
samtök og stofnanir (ópersónulegir aðilar) geta aldrei talist höfundar þó
slíkir aðilar geti auðvitað fengið fjárhagslegan umráðarétt að verkum með
framsali frá höfundi.
Í höfundalögum eru talin upp þau verk
sem teljast vernduð af höfundarétti, meðal þeirra eru kvikmyndir. Hugtakið
kvikmynd í höfundaréttti er skýrt mjög
rúmt, það á þannig við allar gerðir kvikmynda hverju nafni sem nefnast,
t.d. teljast stuttar auglýsingamyndir til kvikmynda í þessu sambandi.
Ekki skiptir heldur máli hvaða miðlunarform er
notað, þannig nær hugtakið yfir kvikmyndir á filmu, myndbandi, geisladiskum og
yfirleitt til allra þeirra aðferða sem skilað geta “kvikum” myndum.
Hverjir eru höfundar í skilningi
höfundalaga?
Höfundur að frumverki. Sá maður telst
höfundur verks sem skapar það. Eins og áður sagði eru það einungis
einstaklingar sem talist geta höfundar þar sem ópersónulegir aðilar skapa ekki
verk. Gagnvart sönnunarreglum er almennt sá maður talinn höfundur verks sem nafngreindur
er við birtingu eða á eintökum þess með venjulegum hætti. Þetta gildir einnig
um höfunda sem nota gervinöfn eða merki, þegar almennt er vitað, hvað felst þar
að baki. Þessi regla á einnig við um framleiðanda kvikmyndaverks. Hafi
höfundur ekki verið nafngreindur skal útgefandi koma fram fyrir hans hönd uns
annað kemur í ljós. Þannig er ljóst að vilji einhver annar aðili en höfundur
eða útgefandi hans nýta sér ákveðið verk með fjárhagslegum hætti verður hann að
ganga út frá því að einhver höfundur sé því að baki, jafnvel þó að, nafn
höfundarins sé ekki þekkt, og til höfundar verði viðkomandi að sækja þann rétt
sem hann vill nýta.
Höfundur að aðlögun verks.
Aðlagandi verks á höfundarétt að viðkomandi verki í hinni breyttu mynd þess.
Hér er t.d. um að ræða þýðendur, höfunda sem hafa aðlagað skáldsögu að kvikmyndaformi – skrifað kvikmyndahandrit
eftir skáldsögu eða öðrum verkum s.s. leiksviðsverki eða ljóði. Réttur þessi er
sama eðlis og réttur frumhöfundar en nær þó auðvitað til þeirra þátta hins
aðlagaða verks sem frá aðlaganda er
kominn. Hinsvegar getur aðlagandi ekki birt verk sitt eða nýtt með öðrum hætti
án sérstaks leyfis frumhöfundarins.
Samhöfundar – sameign að
höfundarétti. Í þeim tilvikum þar sem tveir menn eða fleiri eru höfundar
að sama verki og framlög þeirra verða ekki aðgreind hvert frá öðru sem
sjálfstæð verk eiga slíkir höfundar saman höfundarétt að verkinu. Gott dæmi um
samhöfunda að kvikmyndaverki er t.d. þegar handrit er samið af tveimur mönnum
og annar semur einungis samtalstexta. Þegar um samhöfunda er að ræða á sú regla
við gagnvart ráðstöfunarétti þeirra að
verkinu, að hvorugur getur gert framsalssaminga
án samþykkis hins.
Höfundar safnverka. Hér er um
það að ræða, að einn maður (eða fleiri) setur saman verk sem samanstendur af
verkum annarra (t.d. ljóðasafn antalogia)
með þeim hætti að telja verður framsetningu hans og framlag fela í sér
sjálfstæða andlega sköpun. Viðkomandi nýtur þá höfundaréttar að verkinu hvað
varðar framlag hans.
Takmarkanir á höfundarétti
Þrátt fyrir að höfundaréttur sé talinn
til eignarréttar gilda ýmsar sérstakar takmarkanir um höfundarétt, sem eru
frávik fá meginreglunni um einkarétt höfundar til ráðstöfunar verka sinna. Þær
tegundir takmarkana sem mest hafa gildi gagnvart viðfangsefni þessarar greinar
eru þessar helstar.
Eintakagerð til einkanota.
Almennt er heimilt, án samþykkis höfundar eða rétthafa, að gera eintök af
verki til einkanota eingöngu, þó má enginn gera eða láta gera fleiri en þrjú
slík eintök til notkunar í atvinnu sinni. Frá þessari reglu eru þó ýmsar
undantekningar nefndar í höfundalögum einkum er varða, mannvirkjagerð,
tölvuforrit og höggmyndalist, nytjalist, dráttlist, tónverk og bókmenntaverk.
Undantekningar þessar eiga þó ekki við hvað varðar höggmyndalist, nytjalist,
dráttlist, tónverk og bókmenntaverk, nema leitað sé til annarra manna, sem í
tilviki tónverka og bókmenntaverka hafa atvinnu af slíkri aðstoð. Í þessu
sambandi er rétt að geta þess að hið svokallaða IHM gjald, þ.e. gjald sem lagt
er á eintök á auð hljóð og myndbönd og tæki til afspilunar
slíkra banda er hugsað sem bætur eða þóknun til rétthafa vegna
eintakagerðar sem fram fer að mestu með upptökum úr hljóðvarpi eða
sjónvarpi. Slík eintakagerð er með öðrum orðum heimil en rétt þykir að
bæta rétthöfum tekjumissi sem þeir verða fyrir að þessum völdum.
Tilvitnunarheimild.
Tilvitnun í bókmenntaverk, kvikmyndaverk og tónverk eru heimil ef
hún er gerð í sambandi við gagnrýni, vísindi, almenna kynningu eða í öðrum
viðurkenndum tilgangi, enda sé hún innan hæfilegra marka og rétt með efni farið.
Heimildir vegna frétta og
upplýsingaþjónustu. Fjölmiðlum er heimilt í ýmsum tilvikum að birta myndir eða
teikningar af birtum listaverkum í sambandi við fréttir af dægurviðburðum, þó
nær þessi heimild t.d. ekki til kvikmyndar sem gerð væri í slíkum tilgangi
eingöngu.
Fjölföldunarheimildir. Um er
að ræða sérstakar heimildir sem ýmsir aðilar, svo sem skólar og opinberar
stofnanir geta haft til þess að ljósrita og fjölfalda verk hafi þeir aflað sér
slíkrar heimildar með samningi við samtök höfundaréttarfélaga sem kallast nú Fjölís.
Heimild til endurvarps útvarpsefnis um
kapalkerfi. Hafi verki verið útvarpað beint eða um gervihnött, má
án sérstaks leyfis rétthafa, endurvarpa til almennings um kapalkerfi enda sé
verkinu endurvarpað óbreyttu og samtímis upphaflegri sendingu. Rétthafar geta
þó krafist þóknunar nema um sé að ræða endurvarp til kapalkerfis sem tekur til
færri samtengdra aðila eða íbúða en 25. Slík krafa verður aðeins gerð af
samtökum rétthafa á þessu sviði.
Heimildir til útleigu og lána verka.
Almennt er heimilt að leigja og lána (bókasöfn) bókmenntaverk. Hinsvegar er
slíkt ekki heimilt gagnvart kvikmyndaverkum og tónverkum, nema með heimild
rétthafa.
Sýningar myndverks í sjónvarpi eða
kvikmynd. Eiganda myndverks (sem getur auðvitað verið annar en höfundur)
er heimilt að leyfa birtingu myndverks í sjónvarpi eða kvikmynd enda sé myndin
aðeins aukaatriði í efni kvikmyndar eða sjónvarpsdagskrár. Ennfremur er sjónvarpsstöð
heimilar slíkar birtingar hafi hún samið um slíkan rétt við samtök myndréttarhafa sem nú nefnast Myndstef.
Hversu lengi gildir
höfundaréttur?
Almenna reglan er sú að höfundaréttur
að verki gildir í 70 ár frá og með næstu áramótum eftir lát viðkomandi
höfundar. Hafi höfundar að verki verið fleiri en einn telst verndartími frá
næstu áramótum eftir lát þess höfundar er lengst lifir. Sérregla gildir um
kvikmyndaverk á þá leið að ofangreint 70 ára tímabil telst frá næstu áramótum
eftir lát þess sem lengst lifir af eftirgreindum höfundum kvikmyndaverks,
aðalleikstjóra, handritshöfundar (þ.m.t. höfundar samtalstexta) og tónhöfundar
enda sé tónlistin samin sérstaklega til afnota í kvikmyndaverkum.
Eftir að ofangreindum verndartíma
lýkur er almenna reglan sú að öllum sé heimil notkun viðkomandi verks. Verkið
er þannig orðið að almanna eign (enska Public
Domain) sem auðvitað felur það í sér að enginn getur krafist einkarétttar yfir því. Hinsvegar getur
stofnast sjálfstæður höfundaréttur að aðlögun á viðkomandi verki t.d. þegar
kvikmyndahandrit byggir á gamalli skáldsögu, þá á höfundur handritsins
höfundarétt á þeim hlutum þess sem frá honum koma.
Framsal höfundaréttar – aðiljaskipti
að höfundarétti.
Aðiljaskipti að höfundarétti geta að
meginstofni orðið með fernum hætti, með framsalsamningi,
erfðum, hjúskap eða í afmörkuðum tilvikum með fullnustu skuldheimtumanna. Þess
ber þó að geta að höfundaréttur sem slíkur er ávallt séreign höfundarins meðan
hjúskapur stendur og hann er lífs en hinsvegar teljast tekjur af höfundarétti
til hjúskapareignar. Að höfundi látnum telst höfundaréttur til hjúskapareignar.
Lögsókn skuldheimtumanna og aðför (fjárnám) í höfundarétti er óheimil nema í
því tilviki að um sé að ræða aðila (skuldara) sem fengið hefur til sín rétt með
samningi við höfund og þá því aðeins að skuldaranum hafi verið heimilt að
framselja réttinn til þriðja aðila.
Um framsalssamninga
höfunda verður fjallað í næstu grein minni svo að ekki verður fjallað nánar
um það efni hér.
Úrræði til verndar höfundarétti
– brot gegn höfundarétti.
Áður er vikið að því að höfundaréttur
er talinn til eignarréttar og eru viðurlög við brotum gegn honum í samræmi við
það. Þannig varða aðgerðir sem brjóta í bága við einkarétt höfundar t.d.
gagnvart birtingu og eintakagerð verka hans, sektum eða fangelsi allt að 2
árum. Ýmis önnur brot gegn höfundarétti varða sömu refsingu en of langt mál er
að telja þau upp hér. Ennfremur má gera upptæka eða ónýta þá muni sem
notaðir hafa verið í sambandi við höfundaréttarbrot,
s.s. myndbandsspólur o.s.frv. Að auki á höfundur rétt á því að sækja skaðabætur
úr hendi hins brotlega. Skaðabætur í þessu sambandi skiptast í tvo flokka
annarsvegar almennar fébætur og hinsvegar miskabætur. Fébætur eiga bæta það
fjártjón sem höfundur hefur orðið fyrir af völdum brotsins en miskabætur það ófjárhagslega tjón sem höfundur hefur mátt
þola vegna brota gegn sæmdarrétti hans.
Miskabætur koma því fyrir andleg sárindi, vanlíðan, hneisu o.þh.
Í næstu greinum mínum verður fjallað
um rétttindi skyld höfundarétti,
svokölluð grannréttindi höfundaréttar en
þau taka til réttinda listflytjenda (leikara og tónlistarmanna), framleiðenda
og útvarps og sjónvarpsstöðva. Þá verður einnig tekið sérstaklega á þeim þáttum
höfundarréttarins sem sérstakir eru um kvikmyndir og ekki hefur verið fjallað
um í þessari grein. Loks verða reifaðar helstu tegundir samninga á
þessu sviði.
Þessi grein var birt í Landi og sonum
blaði nr. 28 - MARS/APRIL 2001 2.TBL.
7.ÁRG