Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í þriðja sinn í Reykjavík dagana 23. og 24. september næstkomandi. Rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum ásamt því að skoða samlegðaráhrif mismunandi listforma og áhrif á listsköpun. Sú nýbreytni á sér stað í ár að You Are In Control er haldin á sama tíma og Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og Nordisk Panorama. Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, RIFF, Hönnunarmiðstöð Íslands, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og Kvikmyndamiðstöð Íslands standa að ráðstefnunni og er þetta í fyrsta sinn sem þessir aðilar eiga með sér samstarf af þessu tagi.
Miklar breytingar eiga sér nú stað í menningarmiðlun um heim allan. Tala þeirra sem neyta og njóta menningarafurða ýmiss konar eykst dag frá degi – í réttu hlutfalli við minnkandi sölutölur á geisladiskum og öðrum áþreifanlegum afurðum. Stafræn dreifing, höfundarréttur og fjárfestingar kalla á nýjan hugsunarhátt, ný viðskiptamódel og nýjar leiðir í útgáfu, dreifingu og markaðssetningu. Um leið eru að mótast ný viðskiptamódel þar sem tölvuleikir spila stórt hlutverk í dreifingu á fötum, tónlist og jafnvel kvikmynda. Á ráðstefnunni verður varpað ljósi á margt það nýjasta á þessum vettvangi og leitast við að svara spurningum varðandi þessi efni. Einnig verður skyggnst inn í framtíðina og reynt að sjá hvað hún ber í skauti sér. Samfara ráðstefnunni verður einnig haldinn tónlistarmyndamarkaður fyrir erlenda kaupendur í samstarfi við RIFF.
You Are In Control hefur hlotið verðskuldaða athygli á síðustu árum en í greininni "Thawing Icelandic Relations" (eða Tengslin við Ísland komin úr kuldanum) sem birtist í Music Week í nóvember í fyrra er ráðstefnan hlaðin lofi: "Þáttakendur í You Are In Control stóðu eftir í litlum vafa um ráðsnilld íslenska tónlistariðnaðarins." Ralph Simon, sem talin er einn af upphafsmönnum þráðlausa skemmtiiðnaðarins er einnig aðdáandi ráðstefnunnar: "Þrátt fyrir drungann yfir efnahagsástandinu var mikið um bjartsýni og spennu um stöðu tónlistar í Reykjavík sem heldur áfram að sýna ótrúlegan kraft í nýrri tónlist og sköpunargáfu."
Þegar hefur fjöldi virtra og góðra gesta staðfest þátttöku sína í ráðstefnunni, þar á meðal Paul Bennett frá IDEO, Alicen Catron Schneider frá NBC/Universal Television, Hampus Kivimae frá Sony/ATV Publishing Scandinavia og Elísabet Grétarsdóttir frá CCP.
You are in Control fer fram á Hilton Hótel. Skráning er þegar hafin og er ráðstefnugjald fyrir þá sem skrá sig fyrir 1. september 12.000 krónur. Innifalið í ráðtefnugjaldi er aðgangur að öllum pallborðum og kynningum og þátttaka í vinnusmiðjum, hádegisverður báða dagana og kaffiveitingar. Eftir það er gjaldið 27.000 krónur eða 150 evrur fram til 20. september. Þeir sem skrá sig við inngang greiða 36.000 krónur.
Nánari upplýsingar gefur Kamilla Ingibergsdóttir, verkefnastjóri hjá ÚTÓN í síma 863 3499 eða
kamilla@icelandmusic.is