Lög SÍK - Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda

- - - - - - - -

 

SÍK - SAMBAND ÍSLENSKRA KVIKMYNDAFRAMLEIÐENDA

ASSOCIATION OF ICELANDIC FILM PRODUCERS

 

LÖG SAMBANDSINS

 

 

1.0.

SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, er samband sjálfstæðra íslenskra kvikmyndaframleiðenda sem framleiða allar gerðir kvikmynda. Heimili og varnarþing SÍK er í Reykjavík. Enskt heiti SÍK er SÍK - Association of Icelandic Film Producers.

 

1.1.

Tilgangur SÍK er að efla íslenska kvikmyndagerð og gæta hagsmuna og réttar sjálfstæðra kvikmyndaframleiðenda. SÍK kemur fram fyrir hönd aðildarfélaga gagnvart stjórnvöldum, menningarstofnunum, fjölmiðlum og öðrum félagasamtökum. Til að ná fram markmiðum sínum getur SÍK leitað eftir samstarfi við félög kvikmyndaframleiðenda erlendis og önnur fagfélög í kvikmyndagerð heima og erlendis.

 

2.0.

Inntaka nýrra félaga fer fram á aðalfundi félagsins. Umsóknir um aðild að SÍK skulu vera skriflegar og sendar stjórn SÍK sem  skal sannreyna þau gögn sem styðja viðkomandi umsókn og leggja fyrir aðalfund álit sitt og tillögu um inngöngu eða synjun inngöngu. Niðurstaða stjórnar á umsóknum skal tilkynnt viðkomandi umsækjanda skriflega.  Umsóknir skal senda  með aðalfundarboði. Umsókn um inngöngu telst samþykkt hljóti hún 2/3 hluta greiddra atkvæða.

 

2.1.

Skilyrði fyrir inntöku er að umsækjandi sé sjálfstætt kvikmyndaframleiðslufyrirtæki með lögheimili á Íslandi og hafi framleitt eigin kvikmyndaverk samfleytt í tvö ár og sýnt a.m.k. eitt kvikmyndaverk á almennum sýningum í kvikmyndahúsi samfleytt í  a.m.k. 7 daga eða í sjónvarpi sem hefur umtalsverða dreifingu.

Kvikmyndaframleiðslufyrirtæki telst ekki vera sjálfstætt ef ein sjónvarpsstöð á meira en 1/4 hluta í fyrirtækinu eða tvær eða fleiri sjónvarpsstöðvar eiga samanlagt meira en helming í fyrirtækinu, eða að framleiðslufyrirtækið hafi á síðustu þremur árum framleitt meira en 9/10 hluta af eigin framleiðslu fyrir sömu sjónvarpsstöðina.

 

2.2.

Nýtt aðildarfélag öðlast engin réttindi í SÍK fyrr en það hefur greitt inntökugjald, sem skal nema tvöföldu árgjaldi., og má greiða á aðalfundi þegar inntaka hefur verið samþykkt. Árgjald yfirstandandi starfsárs er innifalið í inntökugjaldi.

 

3.0

Stjórn SÍK skipa fimm menn, formaður, ritari, sem jafnframt er varaformaður, gjaldkeri, tveir meðstjórnendur og tveir varamenn. Varamenn skulu sitja fundi stjórnar og hafa þar málfrelsi og  tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema í forföllum stjórnarmanna. Varamenn skulu taka sæti í stjórn í þeirri röð er aðalfundur ákveður, þ.e. fyrsti og annar varamaður. Formaður boðar stjórnarfundi og stýrir þeim og í hans forföllum varaformaður. Skirrist formaður við að boða til stjórnarfundar geta þrír aðalmenn stjórnar eða fleiri boðað til stjórnarfundar.

 

3.1

Hvert aðildarfélag má ekki eiga nema einn stjórnarmann. Stjórn er kosin á aðalfundi, í þessari röð: formaður, ritari, gjaldkeri, meðstjórnendur, fyrsti varamaður og loks annar varamaður.  Kjörtímabil stjórnar er tvö starfsár. Formaður má ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil í röð. Nú  hljóta tveir menn jafna atkvæðatölu og skal þá varpað hlutkesti milli  þeirra.

 

3.2.

Gangi fleiri en einn stjórnarmanna úr stjórn skal stjórn kalla saman aukaaðalfund, þar sem kjörnir verða nýir stjórnarmenn.

 

3.3.

Stjórn SÍK er ákvörðunarbær þegar meirihluti stjórnarmanna situr fund, þ.e. þrír af fimm. Mikilvægar ákvarðanir skal þó eigi taka nema allir stjórnarmenn hafi haft tækifæri til þess að kynna sér þær, sé þess nokkur kostur.

 

3.4.

Aðalfundur kýs tvo endurskoðendur, annan löggiltan endurskoðenda og hinn úr röðum fulltrúa aðildarfélaga SÍK.

 

4.0.

Aðalfundur SÍK skal haldinn árlega og að jafnaði fyrir 1. júní. Aðalfund skal boða með ábyrgðarbréfi og/eða tölvupósti með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Aðalfundarboði skal fylgja dagskrá, lagabreytingatillögur, sé um þær að ræða og umsóknir um inngöngu.. Stjórn skal halda félagaskrá með nöfnum, símanúmeri, lögheimili, kennitölu og netfangi. Aðildarfélög skulu gæta þess að tilkynna allar breytingar til stjórnar á framangreindum upplýsingum.

 

4.1.

Hvert  aðildarfélag hefur eitt atkvæði  á fundum (félags- og aðalfundum) SÍK. Fyrirsvarsmenn  aðildarfélaganna fara með  atkvæði þeirra eða aðilar með umboð þar að lútandi. Einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála nema samþykktir þessar kveði á um annað.

4.2.

Rétt til fundarsetu á fundum SÍK hafa tveir fulltrúar frá hverju aðildarfélagi, og eru þeir báðir kjörgengir til embætta. Þeir hafa báðir málfrelsi og tillögurétt á fundum en einungis annar þeirra skal fara með atkvæði viðkomandi aðildarfélags. Við atkvæðagreiðslu á fundum SÍK skal greina í fundargerð hvaða aðili hafi farið með atkvæði hvers aðildarfélags.

 

4.3.

Dagskrá aðalfundar:

1.   Lögð fram kjörgögn.

2.   Inntaka nýrra félaga.

3.   Skýrsla stjórnar.

4.   Reikningar SÍK lagðir fram endurskoðaðir.

5.   Lagabreytingar.

6.   Ákvörðun um hvort hækka eigi árgjald.

7.   Stjórnarkjör.

8.   Kjör endurskoðenda.

9.   Önnur mál

 

5.0.

Stjórn SÍK hefur með höndum daglegan rekstur sambandsins í samræmi við tilgang þess. Stjórnarlaun skulu vera sem hér segir: kr. 50.000- grunnlaun frá aðalfundi til aðalfundar fyrir hvern stjórnarmann og varamenn en kr. 100.000- fyrir formann. Auk þess skal greiða sérstaklega fyrir hvern fund kr. 5.000. Stjórn SÍK ræður lögmann/framkvæmdastjóra og/eða aðra starfsmenn ef þurfa þykir og markar þeim starfssvið. Laun stjórnar skulu fylgja launavísitölu. Starfsár stjórnar skal vera tímabilið milli viðkomandi aðalfunda en reikningsár SÍK skal vera almanaksárið. Stjórn SÍK skipar í nefndir og ráð á vegum SÍK eða þar sem SÍK á fulltrúa og ákveður þóknun til nefndarmanna þegar við á.

 

 

5.1.

Stjórn SÍK kemur fram fyrir hönd þess út á við og ritar firma þess.  Stjórnin getur veitt einum eða fleiri stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra umboð til að rita firma SÍK. Allar meiriháttar ákvarðanir sem varða lagalega og/eða fjárhagslega hagsmuni aðildarfélaganna skulu bornar undir félagsfund. Aðildarfélögin eru bundin af löglega gerðum samningum og eða samþykktum SÍK.

 

5.2.

Stjórn SÍK skal gefa út fréttabréf á vef sambandsins a.m.k. ársfjórðungslega og skýra þar frá helstu viðfangsefnum stjórnar. Dagskrá stjórnarfunda skal birt á vef SÍK þegar þeir eru boðaðir. Fundargerðir skulu aðgengilegar á lokuðu vefsvæði SÍK eigi síðar en viku eftir fund.

 

5.3.

Stjórn SÍK gerir samninga við hagsmunasamtök kvikmyndagerðarmanna, leikara,  tónskálda, hljómlistarmanna, höfunda, leikmyndagerðarmanna og aðra þá, sem kvikmyndaframleiðendur kaupa af vinnu, þjónustu, vörur eða réttindi, og skipar fulltrúa á vegum SÍK. Slíka samninga skal bera upp til samþykktar á næsta félags- eða aðalfundi.

 

5.4.

Auk aðalfundar skal SÍK halda fundi hvenær sem þurfa þykir. Skylt er stjórn að kalla saman fund innan tveggja vikna ef fimm aðildarfélög óska þess og tilgreina ástæðu. Félagsfundi skal boða með a.m.k. viku fyrirvara í tilkynningu til félagsmanna með tölvupósti.

 

5.5.

SÍK getur gerst aðili að stofnunum, fyrirtækjum eða samtökum, innlendum og erlendum, enda hafi slík ákvörðun hlotið samþykki á félagsfundi SÍK.

 

6.0

Heimilt er að starfrækja innan SÍK gildi sem gæta sérhagsmuna ákveðinna greina kvikmyndaframleiðslu, eins og  t.d. heimildamynda og teiknimynda. Reynt skal eftir því sem kostur er að tryggja að slík gildi eigi aðal- eða varamann í stjórn SÍK. Slíkir stjórnarmenn teljast formenn gildanna og bera ábyrgð á starfsemi þeirra, í samráði við stjórn SÍK. Gildin starfa að sérhagsmunamálum greinanna og vinna náið með stjórn SÍK í að tryggja þá sérhagsmuni sem talið er nauðsynlegt að vinna sérstaklega að, samhliða vinnu við að gæta almennra hagsmuna allra aðildarfélaga í SÍK.

 

7.0.

Breytingar á lögum SÍK verða ekki gerðar nema á aðalfundi þar sem mættir eru fulltrúar virkra aðildarfélaga sem samtals fari með a.m.k. 3/4 hluta atkvæða og þá því aðeins að 2/3 hluti atkvæða virkra aðildarfélaga, sem mætt er fyrir á fundinum, gjaldi þeim jáyrði sitt. Mæti ekki tilskilið hlutfall aðildarfélaga á viðkomandi aðalfund skal boða til aukaaðalfundar, með lögmætum hætti, þar sem lagabreytingartillögurnar skulu bornar upp til samþykktar eða synjunar og skiptir þá ekki máli hversu margir fulltrúar aðildarfélaganna eru mættir. Allar tillögur um lagabreytingar stjórnar SÍK skulu boðaðar í dagskrá aðalfundar. Aðrar lagabreytingartillögur skulu sendar stjórn SÍK a.m.k. sjö dögum fyrir boðaðan aðalfund og skal stjórn SÍK senda slíkar tillögur til aðildarfélaganna svo fljótt sem auðið er.

 

8.0.

Árgjald skal að lágmarki vera 25.000 kr. Árgjald má ekki lækka eða fella niður nema með lagabreytingu. Hækkun á árgjaldi skal samþykkt á aðalfundi. Gjalddagi þess skal vera 1. janúar á hverju ári, en í síðasta lagi viku fyrir aðalfund.

 

8.1.

Þau aðildarfélög sem ekki hafa greitt árgjald, samkvæmt framansögðu, verða óvirk aðildarfélög. Óvirk aðildarfélög hafa ekki atkvæðisrétt, kjörgengi eða rétt til fundarsetu, en halda öðrum réttindum aðildarfélaga. Óvirk aðildarfélög geta endurnýjað aðild sína með greiðslu árgjalds sbr. grein 7.0. og hafið á ný fulla þátttöku í SÍK.

 

9.0.

Í þeim tilfellum að framleiðslufyrirtæki eða félag hefur verið lagt niður, slitið eða gjaldþrotaskiptum þess lokið, skal sá aðili, sem farið hefur með atkvæðisrétt þess á fundum SÍK, skv. 4.2. gr., rétt til þess að flytja með sér réttindi þau sem viðkomandi félag eða fyrirtæki hefur átt hvað varðar aðildarhæfi skv. framansögðu, að því tilskyldu að viðkomandi einstaklingur eða fyrirtæki hans eigi, eða hafi heimild til að ráðstafa, öllum öðrum réttindum vegna viðkomandi kvikmyndar.

 

9.1.

Í þeim tilvikum er aðili að SÍK stendur að stofnun nýs framleiðslufyrirtækis skulu eftirfarandi  reglur gilda vegna aðildaréttar slíks fyrirtækis að SÍK: Eigi aðildarfélag að SÍK meira en 50% eignarhlut í hinu nýja fyrirtæki skal það fyrirtæki teljast hluti  aðildarfélagsins og þar með ekki hafa sjálfstæðan aðildarrétt að SÍK. Í öðrum tilvikum skal hið nýja fyrirtæki eiga rétt á aðild að SÍK að öðrum skilyrðum uppfylltum. Í þeim tilfellum að aðilar hafa gert með sér sam-framleiðslusamning en eignaraðild aðilanna að kvikmyndinni er jöfn, skal það aðildarfélag eða það fyrirtæki sem hyggur á umsókn um aðild að SÍK, og frumkvæði átti að þróun viðkomandi verkefnis (originating producer), teljast  fara með réttindi vegna viðkomandi  kvikmyndar samkvæmt lögum þessum. Að öðru jöfnu skal sá aðili sem titlaður er sem aðalframleiðandi kvikmyndar fara með réttindi þessi.

 

9.3.

Skylt er að taka skriflega úrsögn aðildarfélaga til greina.

 

10.0.

Ákvörðun um slit Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, meðferð og skiptingu eigna þess, skal tekin með sama hætti og gildir um lagabreytingar að því undanskildu að 3/4 hluta atkvæða þarf til þess að hún nái fram að ganga.

 

10.1.

Við slit sambandsins skal fjármunum þess skipt milli aðildarfélaga miðað við uppgjör löggilts endurskoðanda þess. 

 

10.2.

Einu sinni á ári skal úthlutað tekjum frá Innheimtumiðstöð gjalda (IHM) eftir sjónvarpsáhorfsmælingum Capacent Gallup fyrirtækisins eða annars fyrirtækis sem fengið verður til þessa verks. Þannig verður heildaráhorf á efni frá sjálfstæðum framleiðendum mælt í mínútum og sjötíu og fimm prósent (75%) af IHM tekjum ársins skipt á milli framleiðenda í því hlutfalli sem þeir eiga af áhorfi og samkvæmt úthlutunarreglum SÍK sem aðgengilegar skulu á vef SÍK á hverjum tíma.

 

Rétthafar gagnvart úthlutun IHM tekna, sem SÍK berast, skulu vera allir sjálfstæðir framleiðendur sem framleitt hafa eigin íslensk kvikmyndaverk (án tillits til aðildar að SÍK) og gera kröfu um úthlutun til sín samkvæmt auglýsingu(m) frá SÍK um væntanlegar úthlutanir IHM tekna.

 

Tuttugu og fimm prósent (25%) IHM tekna SÍK verði varðveittar á hávaxtareikningi í varasjóði til að mæta mögulegum framtíðarkröfum á hendur félaginu vegna skiptingar IHM tekna og/eða vegna almenns rekstrarkostnaðar og lögfræðilegra aðgerða sem talið getur verið nauðsynlegt að SÍK ráðist í. Í varasjóði þessum skal, á hverjum tíma,  þó aldrei vera hærri fjárhæð en sem nemur uppsafnaðri tekjuhlutdeild hans síðustu fjögurra undanfarinna ára. Verði um umframhlutdeildar-tekjur að ræða samkvæmt framansögðu skal þeim ráðstafað til almennrar úthlutunar til framleiðenda, skv. 2. mgr., gr. 10.2. 

 

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi SÍK - Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, sem haldinn var þann  20. október 2011.