Ályktun stjórnar SÍK vegna málefna RÚV
Reykjavík 15. desember 2008
Stjórn SÍK - Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda - hefur fjallað um ákveðna þætti frumvarps til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið ohf., sem nú liggur fyrir Alþingi.
SÍK telur að ákvæði frumvarpsins um skerðingu á auglýsingatíma sjónvarps RÚV geti verið af hinu góða og leitt til eðlilegra starfsumhverfis RÚV og bættra rekstrarskilyrða sjónvarpsstöðva í einkarekstri. Hinsvegar bendir SÍK á að rétt sé að fara varlega í þessu efni og æskilegt að breytingar verði gerðar í áföngum, þannig að hægt sé að meta markvisst afleiðingar þeirra. Sé farið of hratt í þessar breytingar, má gera ráð fyrir að starfsöryggi stórs hóps fagmanna í greininni sé í hættu, sem hefði bein áhrif á aðgang framleiðenda að vel þjálfuðu fagfólki.
SÍK hvetur ennfremur til að samhliða breytingum þessum komi fram dagskrárstefna frá öllum sjónvarpsstöðvunum sem feli í sér aukna framleiðslu og kaup á íslensku sjónvarpsefni og kvikmyndum og bendir jafnframt á að skynsamlegt gæti verið að leyfa meira magn auglýsinga í kringum útsendingar á íslensku sjónvarpsefni, með það að markmiði að auka vægi þess í dagskrá.
Loks bendir SÍK á að eðlilegt sé að framleiðendum sjónvarpsmyndefnis sé gert kleift að afla tekna með svokallaðri kostun þrátt fyrir að með frumvarpinu sé tekið fyrir möguleika RÚV á að afla slíkra tekna.
-