Ályktun stjórnar SÍK vegna hækkunar á tímabundinni endurgreiðslu af kvikmyndagerð

Kvikmyndaframleiðendur fagna nýjum lögum um hækkun á endurgreiðslum vegna kvikmyndagerðar

 

 

Stjórn SÍK – Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda fagnar því að Alþingi hafi nú nýlega samþykkt samhljóða að hækka hlutfall tímabundinnar endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar á Íslandi úr 14% í 20%. Þessi ákvörðun er mjög mikilvæg íslenskum kvikmyndafyrirtækjum og á eftir að auka gjaldeyristekjur vegna kvikmyndagerðar verulega. Náttúra Íslands og öll hennar ótrúlegu myndform eru nú orðin samkeppnishæf á nýjan leik.

 

Á undanförnum árum hafa erlend kvikmyndaverkefni skapað hér hundruðir starfa og nú aukast líkurnar á því að fleiri slík verkefni verið tekin hér á landi. Það mun styrkja  þann faghóp sem hér hefur orðið til og tryggja stöðugra framboð að atvinnu fyrir faghóp sem skilar sinni vinnu fyllilega samkeppnishæf við það besta sem gerist erlendis.

 

Fyrir íslenska kvikmyndaframleiðendur þýðir þessi breyting að fjármögnun á íslenskum kvikmyndum verður einfaldari og meira af erlendu fjármagni verður eftir í landinu.

 

SÍK gerði nýlega könnun meðal félaga sem eiga aðild að sambandinu á fjölda starfa og veltu á árunum 2007 og 2008. Þar kemur í ljós að ætla að um 225 ársverk  hafi verið  hjá félögum í SÍK árið 2008 og að velta þeirra var um 4,2 milljarðar, eða 18,7 milljónir á hvert starf. Ef sömu forsendur eru notaðar yfir kvikmyndaiðnaðinn í heild sinni, má áætla að nær 300 ársverk séu í iðnaðinum á Íslandi.

 

Það er því eðlilegt að áætla að þessi hækkun á endurgreiðslu gerir íslenskan kvikmyndaiðnað samkeppnishæfari þegar kemur að vali á tökustöðum fyrir stærri kvikmyndaverkefni og að það verði til enn fleiri störf í iðnaðinum hér á landi og gjaldeyristekjur  aukist verulega. Það er fagnaðarefni.

 

 

 

Stjórn SÍK:

 

Ari Kristinsson

Hilmar Sigurðsson

Kjartan Þór Þórðarson

Hrönn Kristinsdóttir

Baltasar Kormákur