Lesa frétt2

Aðalfundur SÍK 2013

Stjórn SÍK boðar til aðalfundar SÍK 2013 föstudaginn 31. maí kl. 15 í Bíó Paradís.

Alþjóðlegur dagur hugverkaréttar

Alþjóðlegur dagur hugverkaréttar miðvikudaginn 22. maí í Rímu, Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi frá kl. 09:00–12:00

Góð ráð frá ritstjóra til framleiðenda

Wendy Mitchell, ritstjóri Screen gefur framleiðendum góð ráð um fjölmiðla

Kynning á dagskrárstefnu RÚV

Föstudaginn 26. apríl kl. 14:00 í Bíó Paradís.SÍK boðar til fundar með RÚV  þar sem Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV kynnir nýja dagskrárstefnu RÚV.

Landsmönnum boðið í bíó – 34 íslenskar myndir á 18 stöðum

Íslensk kvikmyndahelgi fer fram 22. – 24. mars. Tilefnið er hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð og sá stuðningur sem kvikmyndagreinin hefur fengið í gegnum tíðina. 

SÍK Auglýsir IHM úthlutun 2013

SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda - auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK.

Konur mynda meirihluta í nýrri stjórn SÍK

Aðalfundur SÍK – Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda var haldinn í gær, 25. október. Á fundinum var kosin ný stjórn sambandsins til tveggja ára og þau tímamót urðu að konur mynda nú meirihluta 7 manna stjórnar SÍK í fyrsta skiptið.

Aðalfundur SÍK 2012

Aðalfundur SÍK 2012 verður haldinn 25. október og verður hann sérstaklega auglýstur aðildarfélögum í tölvupósti. 

Spennandi viðburðir á Reykjavík Shorts & Docs hátíðinni

Reykjavík Shorts & Docs Festival stendur yfir dagana 6.-9.maí í Bíó Paradís. Um er að ræða masterclassa, kynningar á dreifingu kvikmynda og fjármögnun heimildamynda, auk Q&As.

Tryggingar fyrir verktaka í kvikmyndagerð

Þriðjudaginn 24. apríl kl. 18 í Bíó Paradís býður FK - Félag kvikmyndagerðarmanna félögum sínum og öðrum áhugasömum upp á kynningarfund og pallborðsumræður um skyldurtryggingar og aðrar tryggingar fyrir verktaka í kvikmyndagerð.

Áheyrnarprufur FÍL

Miðvikudaginn 28. mars fara fram áheyrarprufur í Borgarleikhúsinu. Prufurnar hefjast kl. 16:30

Breyting á stjórn SÍK

Breytingar hafa orðið á stjórn SÍK en Ari Kristinsson hefur horfið til nýrra starfa. Honum eru þökkuð mikil og óeigingjörn störf í þágu íslenskra framleiðenda.

IHM úthlutun 2012

SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda - auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK. 
Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndir sem sýndar hafa verið í sjónvarpi á árinu 2011.

Edduverðlaunin 2012

Edduverðlaunin verða afhent 18. febrúar 2012 í Gamla Bíói. Tilkynnt verður um tilnefningar 3. febrúar 2012 í Bíó Paradís.

Aðalfundur SÍK 2011

Aðalfundur SÍK 2011 var haldinn fimmtudaginn 20. október kl. 18 á Hótel Plaza við Ingólfstorg.

Norræn heimildamynda fjármögnunarmessa

Skilafrestur á verkefnum í Nordisk Forum fyrir meðfjármögnun á heimildarmyndum rennur út 10. júní

Drama TV Directory

Nokkrar MEDIA skrifstofur í Evrópu hafa tekið saman lista yfir sjónvarpsstöðvar sem kaupa leikið sjónvarpsefni.

Breytingar á úthlutnarreglum Eurimages

Eurimages hefur sent út tilkynningu um breytingar á úthlutunarreglum

Hvernig getur þitt fyrirtæki aukið tekjur sínar gegnum betri nýtingu höfundarréttar?

Ráðstefna í Bíó Paradís - miðvikudaginn 3. nóvember - Skráningarfrestur til 29. október kl. 17.

Aðalfundur SÍK 2010

Á aðalfundi SÍK bar það helst til tíðinda að 17 ný aðildarfélög gengu í SÍK. Þrettán þeirra komu eftir sameiningu FSK inn í SÍK og eru kvikmyndaframleiðendur nú sameinaðir í einu félagi.

Sjónvarp á netinu

Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur opnað sjónvarp á netinu þar sem m.a. má sjá útsendingu frá fjölmennum fundi "upp úr skotgröfunum" þar sem rætt var um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar.

Fimm milljarða tekjutap kvikmyndaiðnaðarins 2010-2013

Félög í kvikmyndaiðnaði hafa kynnt skýrslu um fjármögnun íslenskra kvikmyndaverka 2006-2009. Niðurstöður hennar eru athyglisverðar á margan hátt.

Íslenska þjóðin hlaut heiðursverðlaun Eddunnar

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían veitt íslensku þjóðinni heiðursverðlaun Eddunnar á nýliðinni Eddu hátíð.

Íslensk kvikmyndaverk í Listasafni Íslands

Sýning í Listasafni Íslands dagana 25. - 28. febrúar á íslenskum kvikmynduðum verkum. Þar má einnig finna niðurstöður úr könnum sem framleiðendur gerðu á fjármögnun íslenskra kvikmyndaðra verka á árunum 2006-2009.

Edduverðlaunin afhent á laugardaginn

Edduverðlaunin verða afhent laugardaginn 27. febrúar í Háskólabíói. Kvikmyndaframleiðendur er hvattir til að mæta - aðgangseyrir einungis 1.000 kr.

Fjármögnun RÚV

Skýrsla sem Þorsteinn Þorsteinsson forstöðumaður markaðssviðs RÚV skrifar árið 2004

ÁLYKTUN

Ályktun af opnum samstöðufundi um íslenska kvikmyndagerð 25. janúar

Opin samstöðu- og aðgerðafundur íslenskrar kvikmyndagerðar

Opin samstöðu- og aðgerðafundur íslenskrar kvikmyndagerðar verður haldinn á Hótel Borg kl. 20:00 mánudagskvöldið 25. janúar.

Opinn fundur um stöðu Kvikmyndasjóðs

Kvikmyndamiðstöð boðar til fundar með kvikmyndagerðarmönnum í Iðnó fimmtudaginn 28. janúar kl. 16 þar sem staða Kvikmyndasjóðs verður rædd.

Samningar við leikara

Félögum í SÍK er bent á að hafa samband við samninganefnd SÍK eða stjórn SÍK vegna samningagerðar við leikara. Enn er ósamið við leikara.

Móttaka á kvikmyndaefni fyrir Edduverðlaunin

Leiðbeiningar um hvernig skila skal efni fyirr Edduverðlaunin.

Edduverðlaunin

Frestur til innsendinga kvikmyndaverka til Edduverðlaunanna rennur út 1. desember! Innsendingarblaðið er aðgengilegt hér á vef SÍK

Stuðningur frá Evrópu við íslenska kvikmyndagerð

Samband evrópskra kvikmyndaleikstjóra hefur sent ríkisstjórn Íslands bréf með hvatningu um að láta af fyrirhuguðum niðurskurði á kvikmyndasjóðum.

Engar íslenskar torrentsíður upp í dag

Í dag eru engar íslenskar torrentsíður í gangi samkvæmt upplýsingum frá SMÁÍS.

Fundur með fjárlaganefnd

Formenn kvikmyndagerðarfélaganna hittu fjárlaganefnd á fundi þann 6. október og fóru yfir afstöðu kvikmyndagerðarmanna til fjárlagafrumvarpsins.

Samstarfsvettvangur tónlistar- og kvikmyndaréttahafa stofnaður

SÍK, IHM, STEF, FHF, SMÁÍS og SFH hafa stofnað með sér samstarfsvettvang tónlistar- og kvikmyndarétthafa til að vinna gegn ólöglegri notkun höfundarréttarvarins efnis.

Stórfelldur niðurskurður til kvikmyndasjóða setur yfir 100 störf í uppnám!

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 kemur fram að framlög til kvikmyndasjóða verði skorin niður um 200 milljónir króna. Talið er að yfir 100 ársverk tapist við þennan niðurskurð og að þetta sé bein aðför að mannaflsfrekri sprotagrein sem hafi verið í hvað örustum vexti hin síðastu ár.

Óskar inn, EDDAn og ÍKSA

ÍKSA hefur valið Reykjavík-Rotterdam sem framlag Íslands í bestu erlendu myndina á Óskarsverðlaununum.

Open Source kvikmyndagerð á Nordisk Panorama 2009

Nordisk Film og TV Fund býður upp á röð viðburða á Nordisk Panorama í Reykjavík 25. – 30. september tengdum Open Source kvikmyndagerð.

DC++ dómur staðfestur í Hæstarétti

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem var kveðinn upp fyrir um ári síðan í svokölluðu DC++ máli sem varðar höfundarréttarvarið efni. 9 manns hlutu dóm, sá þyngsti 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Samningar við Félag íslenskra leikara

Samninganefndir SÍK og FÍL hafa verið að hittast á fundum að undanförnu og er góður gangur í viðræðum milli aðila. Félagsmenn í SÍK eru beðnir um að hafa samband við stjórn SÍK ef til stendur að semja við leikara vegna kvikmynda á næstunni.

Ný netlög samþykkt í Frakklandi

Neðri deildin í Franska þinginu hefur samþykkt ný netlög sem takmarka möguleika fólks til ólöglegs niðurhals.

Samið um Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn

Samkomulag um Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn hefur verið gert til fimm ára. Jafnframt hefur verið tilkynnt um "Nordic High Five" verkefni sem er ætlað að auka framboð norræna mynda.

Skjaldborg 2009

Hvítasunnuhelgina 29. maí – 1. júní verður Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda haldin í þriðja sinn á Patreksfirði.

SÍK segir upp samningi við Félag íslenskra leikara

Stjórn SÍK hefur sagt upp samningi SÍK við FÍL sem var gerður árið 2003.

Aðalfundur SÍK verður haldinn 27. maí n.k.

Stjórn SÍK boðar til aðalfundar SÍK þann 27. maí n.k. í samræmi við lög sambandsins.

Stofnendur Pirate Bay fundnir sekir og dæmdir

Aðilarnir fjórir voru dæmdir til árs fangelsisvistar og til greiðslu 480 milljóna í skaðabætur til sóknaraðila.

Um 300 ársverk í kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi

Í grein sem er hér á vef SÍK kemur fram að um 300 ársverk eru í kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi.

Kynningarfundur um endurgreiðslu til kvikmynda

Föstudaginn 8. maí kl. 12 verður haldin upplýsinga og kynningafundur í sal Þjóðminjasafnsins um tímabundna endurgreiðslu vegna framleiðslukostnaðar af kvikmyndum.

Hækkun endurgreiðslu samþykkt á Alþingi!

Frumvarp um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar hér á landi hefur verið samþykkt á Alþingi. Þessi hækkun hefur mikil áhrif fyrir kvikmyndagerð á Íslandi og er fagnaðarefni fyrir kvikmyndaframleiðendur.