Í dag voru undirritaðir samningar um aðild Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Svana Helen Björnsdóttir, formaður SI, Margrét Kristmundsdóttir, varaformaður SA og Hilmar Sigurðsson, formaður SÍK skrifuðu undir samningana.
Á aðalfundi SÍK þann 31. maí var samþykkt að SÍK gerðist aðili að Samtökum iðnaðarins og fimm ný aðildarfélög voru samþykkt inn í SÍK.
Stjórn SÍK boðar til aðalfundar SÍK 2013 föstudaginn 31. maí kl. 15 í Bíó Paradís.
Alþjóðlegur dagur hugverkaréttar miðvikudaginn 22. maí í Rímu, Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi frá kl. 09:00–12:00
Wendy Mitchell, ritstjóri Screen gefur framleiðendum góð ráð um fjölmiðla
Föstudaginn 26. apríl kl. 14:00 í Bíó Paradís.SÍK boðar til fundar með RÚV þar sem Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV kynnir nýja dagskrárstefnu RÚV.
Íslensk kvikmyndahelgi fer fram 22. – 24. mars. Tilefnið er hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð og sá stuðningur sem kvikmyndagreinin hefur fengið í gegnum tíðina.
SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda - auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK.
Aðalfundur SÍK – Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda var haldinn í gær, 25. október. Á fundinum var kosin ný stjórn sambandsins til tveggja ára og þau tímamót urðu að konur mynda nú meirihluta 7 manna stjórnar SÍK í fyrsta skiptið.
Aðalfundur SÍK 2012 verður haldinn 25. október og verður hann sérstaklega auglýstur aðildarfélögum í tölvupósti.
Reykjavík Shorts & Docs Festival stendur yfir dagana 6.-9.maí í Bíó Paradís. Um er að ræða masterclassa, kynningar á dreifingu kvikmynda og fjármögnun heimildamynda, auk Q&As.
Þriðjudaginn 24. apríl kl. 18 í Bíó Paradís býður FK - Félag kvikmyndagerðarmanna félögum sínum og öðrum áhugasömum upp á kynningarfund og pallborðsumræður um skyldurtryggingar og aðrar tryggingar fyrir verktaka í kvikmyndagerð.
Miðvikudaginn 28. mars fara fram áheyrarprufur í Borgarleikhúsinu. Prufurnar hefjast kl. 16:30
Breytingar hafa orðið á stjórn SÍK en Ari Kristinsson hefur horfið til nýrra starfa. Honum eru þökkuð mikil og óeigingjörn störf í þágu íslenskra framleiðenda.
SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda - auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK.
Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndir sem sýndar hafa verið í sjónvarpi á árinu 2011.
Edduverðlaunin verða afhent 18. febrúar 2012 í Gamla Bíói. Tilkynnt verður um tilnefningar 3. febrúar 2012 í Bíó Paradís.
Aðalfundur SÍK 2011 var haldinn fimmtudaginn 20. október kl. 18 á Hótel Plaza við Ingólfstorg.
Skilafrestur á verkefnum í Nordisk Forum fyrir meðfjármögnun á heimildarmyndum rennur út 10. júní
Nokkrar MEDIA skrifstofur í Evrópu hafa tekið saman lista yfir sjónvarpsstöðvar sem kaupa leikið sjónvarpsefni.
Eurimages hefur sent út tilkynningu um breytingar á úthlutunarreglum
Ráðstefna í Bíó Paradís - miðvikudaginn 3. nóvember - Skráningarfrestur til 29. október kl. 17.
Á aðalfundi SÍK bar það helst til tíðinda að 17 ný aðildarfélög gengu í SÍK. Þrettán þeirra komu eftir sameiningu FSK inn í SÍK og eru kvikmyndaframleiðendur nú sameinaðir í einu félagi.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur opnað sjónvarp á netinu þar sem m.a. má sjá útsendingu frá fjölmennum fundi "upp úr skotgröfunum" þar sem rætt var um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar.
Félög í kvikmyndaiðnaði hafa kynnt skýrslu um fjármögnun íslenskra kvikmyndaverka 2006-2009. Niðurstöður hennar eru athyglisverðar á margan hátt.
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían veitt íslensku þjóðinni heiðursverðlaun Eddunnar á nýliðinni Eddu hátíð.
Sýning í Listasafni Íslands dagana 25. - 28. febrúar á íslenskum kvikmynduðum verkum. Þar má einnig finna niðurstöður úr könnum sem framleiðendur gerðu á fjármögnun íslenskra kvikmyndaðra verka á árunum 2006-2009.
Edduverðlaunin verða afhent laugardaginn 27. febrúar í Háskólabíói. Kvikmyndaframleiðendur er hvattir til að mæta - aðgangseyrir einungis 1.000 kr.
Skýrsla sem Þorsteinn Þorsteinsson forstöðumaður markaðssviðs RÚV skrifar árið 2004
Ályktun af opnum samstöðufundi um íslenska kvikmyndagerð 25. janúar
Opin samstöðu- og aðgerðafundur íslenskrar kvikmyndagerðar verður haldinn á Hótel Borg kl. 20:00 mánudagskvöldið 25. janúar.
Kvikmyndamiðstöð boðar til fundar með kvikmyndagerðarmönnum í Iðnó fimmtudaginn 28. janúar kl. 16 þar sem staða Kvikmyndasjóðs verður rædd.
Félögum í SÍK er bent á að hafa samband við samninganefnd SÍK eða stjórn SÍK vegna samningagerðar við leikara. Enn er ósamið við leikara.
Leiðbeiningar um hvernig skila skal efni fyirr Edduverðlaunin.
Frestur til innsendinga kvikmyndaverka til Edduverðlaunanna rennur út 1. desember! Innsendingarblaðið er aðgengilegt hér á vef SÍK
Samband evrópskra kvikmyndaleikstjóra hefur sent ríkisstjórn Íslands bréf með hvatningu um að láta af fyrirhuguðum niðurskurði á kvikmyndasjóðum.
Í dag eru engar íslenskar torrentsíður í gangi samkvæmt upplýsingum frá SMÁÍS.
Formenn kvikmyndagerðarfélaganna hittu fjárlaganefnd á fundi þann 6. október og fóru yfir afstöðu kvikmyndagerðarmanna til fjárlagafrumvarpsins.
SÍK, IHM, STEF, FHF, SMÁÍS og SFH hafa stofnað með sér samstarfsvettvang tónlistar- og kvikmyndarétthafa til að vinna gegn ólöglegri notkun höfundarréttarvarins efnis.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 kemur fram að framlög til kvikmyndasjóða verði skorin niður um 200 milljónir króna. Talið er að yfir 100 ársverk tapist við þennan niðurskurð og að þetta sé bein aðför að mannaflsfrekri sprotagrein sem hafi verið í hvað örustum vexti hin síðastu ár.
ÍKSA hefur valið Reykjavík-Rotterdam sem framlag Íslands í bestu erlendu myndina á Óskarsverðlaununum.
Nordisk Film og TV Fund býður upp á röð viðburða á Nordisk Panorama í Reykjavík 25. – 30. september tengdum Open Source kvikmyndagerð.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem var kveðinn upp fyrir um ári síðan í svokölluðu DC++ máli sem varðar höfundarréttarvarið efni. 9 manns hlutu dóm, sá þyngsti 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Samninganefndir SÍK og FÍL hafa verið að hittast á fundum að undanförnu og er góður gangur í viðræðum milli aðila. Félagsmenn í SÍK eru beðnir um að hafa samband við stjórn SÍK ef til stendur að semja við leikara vegna kvikmynda á næstunni.
Neðri deildin í Franska þinginu hefur samþykkt ný netlög sem takmarka möguleika fólks til ólöglegs niðurhals.
Samkomulag um Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn hefur verið gert til fimm ára. Jafnframt hefur verið tilkynnt um "Nordic High Five" verkefni sem er ætlað að auka framboð norræna mynda.
Hvítasunnuhelgina 29. maí – 1. júní verður Skjaldborg – hátíð
íslenskra heimildamynda haldin í þriðja sinn á Patreksfirði.
Stjórn SÍK hefur sagt upp samningi SÍK við FÍL sem var gerður árið 2003.
Stjórn SÍK boðar til aðalfundar SÍK þann 27. maí n.k. í samræmi við lög sambandsins.
Aðilarnir fjórir voru dæmdir til árs fangelsisvistar og til greiðslu 480 milljóna í skaðabætur til sóknaraðila.
Í grein sem er
hér á vef SÍK kemur fram að um 300 ársverk eru í kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi.