Lesa frétt

Tryggingar fyrir verktaka í kvikmyndagerð

Á undanförnum misserum hefur nokkuð borði á ósætti á milli framleiðenda og verktaka í kvikmyndageiranum vegna trygginga sem framleiðendur krefjast af þeim sem starfa sem verktakar í verkefnum á þeirra vegum.

Í því tilefni mun Ágúst Karlsson lögfræðingur FK fara yfir skyldutryggingar fyrir verktaka og ýmsir fulltrúar tryggingafélaganna munu ræða þá tryggingapakka sem kvikmyndagerðarmönnum standa til boða.

Á eftir framsögu Ágústs verða pallborðsumræður um tryggingamál. Stjórnandi pallborðsins verður Arnar Marrow Einarsson gripill, aðrir þátttakendur eru: Hrönn Kristinssdóttir fulltrúi SÍK, Gunnar Pétursson frá Sjóvá, og Ágúst Karlsson lögfræðingur sem munu kynna málefnið frekar frá sínu sjónarhorni og svara fyrirspurnum.

Að pallborðsumræðum loknum býður FK félagsmönnum sínum upp á einn öl eða óáfengann drykk, popp og ókeypis í bíó kl. 20 á hina óforbetranlegu finnsku gamanmynd Iron Sky eða mynd að eigin vali á Laxnesshátíðinni.