Samtök evrópskra kvikmyndaleikstjóra (
FERA) hefur sent ríkisstjórn Íslands
bréf til stuðnings kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi og þeim mikla
niðurskurði sem fyrirhugaður er á framlögum til kvikmyndasjóða í
fjárlagafrumvarpinu sem nú er til umfjöllunar. Afrit af bréfinu
má sjá hér í PDF formi og hér að neðan í íslenskri þýðingu.
Okkur fannst rétt að vekja athygli kvikmyndaiðnaðarins á þessu bréfi
sem Samtök kvikmyndaleikstjóra hefur komið á framfæri við
ríkisstjórnina.
- - -
Brussel, 17. nóvember 2009,
TIL RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS
Við í stjórn Samtaka evrópskra kvikmyndaleikstjóra höfum með mikilli
ánægju og undrun fylgst með íslenskum kvikmyndaiðnaði blómstra á
síðustu árum. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa glatt áhorfendur og
notið hylli á kvikmyndahátíðum um alla Evrópu og víðar og hafa skapað
sér sérstöðu með ferskum og nýjungagjörnum kvikmyndum.
Athygli okkar hefur nú verið vakin á því að ríkisstjórn Íslands hyggi á
44% niðurskurð á Kvikmyndasjóði Íslands. Samtök evrópskra
kvikmyndaleikstjóra óska eftir að koma á framfæri miklum áhyggjum sínum
af þessum gífurlega niðurskurði – sem myndi kæfa kvikmyndaiðnað í hvað
Evrópulandi sem er.
Við hvetjum ríkisstjórnina einlæglega til að endurskoða slíkar áætlanir
og velja að fjárfesta í skapandi hæfileikafólki í dag – og í
framtíðinni – þrátt fyrir þá fjárhagslegu erfiðleika sem valda nú
vandræðum um alla Evrópu. Evrópsk menning er samansafn af menningu
allra Evrópulanda. Ef menning þeirra fær ekki þrifist, þá verður lítil
evrópsk menning eftir.
Yðar einlægur,
István Szabó
forseti FERA
(The Federation of European Film Directors)