Lesa frétt

Stórfelldur niðurskurður til kvikmyndasjóða setur yfir 100 störf í uppnám!

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 kemur fram að framlög til kvikmyndasjóða verði skorin niður um 200 milljónir króna. Talið er að yfir 100 ársverk tapist við þennan niðurskurð og að þetta sé bein aðför að mannaflsfrekri sprotagrein sem hafi verið í hvað örustum vexti hin síðastu ár.

Formenn allra kvikmyndafélaganna hittust á fundi í dag með framkvæmdastjóra Kvikmyndamiðstöðvar til að ræða þessa alvarlegu stöðu sem komin er upp. Stjórn SÍK hittist í kjölfarið og hefur þegar sett í gang vinnu við að koma á framfæri upplýsingum um hvað slíkur niðurskurður geti haft í för með sér og hvernig 34% niðurskurður á kvikmyndasjóðum er úr takti við nokkur önnur menningarframlög í fjárlagafrumvarpinu.

Stjórn SÍK mun vinna mjög ákveðið í þessu máli á næstunni og m.a. er búið að koma á fundi með menntamálaráðherra og verið er að vinna að því að komast til botns í því hvernig standi á því að þessi stórfelldi niðurskurður bitni eingöngu á einni menningartengdri grein.

Þessi niðurskurður er einnig mjög undarlegur í ljósi þeirrar staðreyndar að framlög úr kvikmyndasjóði fimmfaldast að meðaltali þegar þau eru byrjun á öflun annars fjármagns til kvikmyndagerðar. Það þýðir að 200 milljónir verða að 1.000 og miðað við 27% meðalskattheimtu myndu um 270 milljónir renna aftur í ríkissjóð.

Bein áhrif þessa niðurskurðar eru talin þau að á næsta ári verði ekkert úr framleiðslu tveggja kvikmynda, tveggja sjónvarpsþáttaraða og að minnsta kosti 4-5 heimilda- og stuttmynda.