Lesa frétt

Stofnendur Pirate Bay fundnir sekir og dæmdir

Þann 17. apríl voru fjórir stofnendur skráarskiptavefsins Pirat Bay fundir sekir um brot á höfundarréttarlögum í héraðsdómi í Stokkhólmi. Þessi niðurstaða markar tímamót í baráttu höfundarréttarsamtaka við ólöglegu niðurhali. Aðilarnir fjórir voru dæmdir til árs fangelsisvistar og til greiðslu 480 milljóna í skaðabætur til sóknaraðila.

Dóminum hefur verið fagnað víða um heim, m.a. af Sambandi sænskra kvikmyndaframleiðenda sem áætla að við ólöglegt niðurhal verði iðnaðurinn í Svíþjóð af um 11 milljarða tekjum árlega.

Hér á Íslandi var lögbann yfir Ístorrent vefnum staðfest í héraðsdómi og í kjölfar Pirate Bay dómsins var einni af helstu sjóræningjasíðum á Íslandi lokað.