Okkur hjá Reykjavík Shorts & Docs Festival langar að vekja athygli á nokkrum viðburðum á hátíðinni sem stendur yfir dagana 6.-9.maí í Bíó Paradís. Um er að ræða masterclassa, kynningar á dreifingu kvikmynda og fjármögnun heimildamynda, auk Q&As. Þessir viðburðir eru allir ókeypis og öllum opnir en þeir hafa þó forgang sem eiga passa á hátíðina eða dagpassa en hvoru tveggja er hægt að kaupa í Bíó Paradís.
Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta félaga FK á hátíðinni, en félagar FK fá 25% afslátt á passa á hátíðina kr. 6000 (fullt verð kr. 8000). Passinn gildir á alla viðburði hátíðarinnar dagana 6.-9.maí í Bíó Paradís.
Með kveðju
Heather Millard, stjórnandi RS&DF
Brynja Dögg Friðriksdóttir, kynningafulltrúi Michael Todd grafískur hönnuður
Linda Vilhjálmsdóttir, dagskrárstjóri.
Masterclassar
- Jerry Rothwell, leikstjóri Town of Runners og Donor Unknown, mánudaginn 7.maí kl. 13:00-14:00
- Kim Longinotto, verndari RS&DF, mánudaginn 7.maí kl. 14:30-15:30
GoPro sýning og kynning
- GoPro sýning, mánudaginn 7.maí kl. 14:30-15:30
- GoPro kynning, Þórhallur Skúlason, umboðsaðili GoPro á Íslandi, mánudaginn 7.maí kl. 14:30-15:30.
- GoPro afsláttur - GoPro á Íslandi veitir sérstakan afslátt á myndavélunum á meðan á hátíðinni stendur.
Pallborðsumræður um dreifingu kvikmynda
mánudaginn 7.maí kl. 13:00-14:00
Kynning á fjármögnun heimildamynda m. Karoline Lidin frá Norræna kvikmynda og sjónvarpssjóðnum og Grétu Ólafsdóttur hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands; mánudaginn 7.maí kl. 16-18:00.
Þessi kynning er ætluð heimildamyndagerðarfólki og þeim sem vilja kynna sér styrki til heimildamyndagerðar hjá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum. Kynningin er ókeypis og öllum opin.
Lidin verður einnig til viðtals þriðjudaginn 8.maí á Kvikmyndamiðstöð Íslands. Ráðgjafafundirnir eru aðeins fyrir þá sem eru að vinna að heimildamyndum framleiddum á Íslandi og/eða norrænar heimildamyndir í vinnsly og þessa fundi þarf að bóka sérstaklega. Þeir sem vilja bóka fund með Lidin er bent á að hafa samband við Ásdísi Höskuldsdóttur hjá KMÍ sem allra fyrst en aðeins er hægt að bóka ráðgjafafund með Lidin þennan eina dag; asdis@kvikmyndamidstod.is
Karolina Lidin er með yfir 15 ára starfsreynslu á sviði stutt- og heimildamynda. Hún hefur unnið sem framleiðslu- og kynningarstjóri hjá MEDIA Project for Creative Documentary. Þar áður var hún framleiðandi í þrjú ár áður en hún hóf störf hjá Dönsku kvikmyndamiðstöðinni, fyrst sem ráðgjafi fyrir stutt- og heimildamyndir og síðar sem dreifingar- og markaðsstjóri. Á árunum 2002-2007 var Lidin framkvæmdastjóri Filmkontakt Nord. (sjá einnig upplýsingar á heimasíðu NFTF).
Fjöldi erlendra gesta og kvikmyndagerðarfólks kemur á RS&DF. Meðal þeirra eru;
- Michael Auret - Spier Films - Alþjóðlegur dreifingar- og fjármögnunaraðili, og leikstjóri kvikmynda í fullri lengd, stutt- og sjónvarpsmyndir, UK (International Distributor, Financier and Producer for Features, Docs and Factual TV)
- Paweł Wysoczański - leikstjóri - We Will Be Happy One Day Pólland
- Marcin Luczaj - dagskrárstjóri - Short Waves, Festival Poznan, Pólland
- Maya Jakubowicz - Women Make Movies - BNA dreifingarfyrirtæki fyrir kvenleikstjóra. * Kim Longinotto - verndari RS&DF og leikstjóri, UK
- Jerry Rothwell - leikstjóri, UK
- Ben cheetham, leiksjtóri, UK
- Silje Glimsdal - leikstjóri og drefingaraðili (distributor) - Trust Nordisk, DK
- Morten Stahlhut - kvikmyndaframleiðandi - Zentropa, DK
- Tomek Adamski - dagsrkárstjóri, Poland
- Ali Silverstein - leikstjóri, CA.
Leikstjórarnir verða viðstaddir sýningu mynda sinna og munu svara spurningum áhorfenda að þeim loknum.
Dagskrá hátíðarinnar og allar nánari upplýsingar á http://shortsdocsfest.com/
Allar nánari upplýsingar veiti Brynja Dögg Friðriksdóttir, kynningarfulltrúi í s: 845 8994.
Best regards
Brynja Dögg Friðriksdóttir
Press officer
Reykjavík Shorts & Docs Festival
http://shortsdocsfest.com/
e-mail: info@shortsdocsfest.com
Twitter: @ShortsDOCSFest