Hvítasunnuhelgina 29. maí – 1. júní verður Skjaldborg – hátíð
íslenskra heimildamynda haldin í þriðja sinn á Patreksfirði. Auk þess
að frumsýna nýjar íslenskar heimildamyndir er hátíðinni ætlað að vera
vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til
að hittast og skiptast á skoðunum. Í lok hátíðarinnar verður besta
heimildamyndin á Skjaldborg 2009 valin af áhorfendum.
Á hátíðinni í fyrra voru frumsýndar yfir 30 íslenskar heimildamyndir
og hlaut hún mikið lof bæði kvikmyndagerðarfólks og annarra gesta. En á
sama tíma og gróska hefur aldrei verið meiri í heimildamyndagerð hér á
landi hefur reynst erfitt að fá myndirnar teknar til sýninga í
kvikmyndahúsum og sjónvarpi. Á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði
geta þeir sem unna góðum heimildamyndum komið saman, horft á þær í
góðri sýningaraðstöðu og tekið þátt í tengdum umræðum.
Skjaldborg leggur sig fram við að sýna heimildamyndir sem öðruvísi
kæmu aldrei fyrir augu almennings og ber jafna virðingu fyrir hinu
smáa, stóra, skrýtna og ódýra. Dagskrána hafa skipað bæði örstuttar
myndir upp í fulla lengd og hafa efnistökin verið fjölbreytt. Þannig að
ef þú heimildamyndagerðarmaður/kona góð/ur lumar á heimildamynd
vinsamlegast sendu þá DVD eintak á eftirfarandi heimilisfang.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda
Laugavegi 17
101 Reykjavík
Nánar á www.skjaldborg.is