Lesa frétt

SÍK segir upp samningi við Félag íslenskra leikara

Á stjórnarfundi SÍK þann 22. apríl 2009 var samþykkt að fela lögmanni félagsins að segja upp samningi SÍK við Félag íslenskra leikara frá 2003.

Árið 2003 gerðu SÍK og Félag íslenskra leikar (FÍL) með sér samning til tveggja ára. Í samningnum var gert ráð fyrir launatölur samningsins myndu hækka í samræmi við launavísitölu tvisvar á samningtímanum, 1. janúar 2004 og 1. janúar 2005. Samningurinn gilti til 1. maí 2005 og eftir það tók við þriggja mánaða uppsagnarfrestur.

FÍL hefur síðan einhliða sett árlega inn hækkun á sína heimasíðu í samræmi við hækkun launavísitölu, þrátt fyrir að samningurinn hafi kveðið á tæmandi hátt á um þau tvö skipti sem slíkt væri heimilt.

Stjórn SÍK hefur skipað í samninganefnd með það að markmiði að gera nýjan samning við FÍL sem fyrst og leysa þetta mál, enda hagsmunir miklir.