Norrænu menningarmálaráðherrarnir hafa gert fimm
ára samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið
er einn stærsti liðurinn í fjárlögum menningamálaráðherranna og mun
styrkja Norðurlönd í alþjóðlegri samkeppni á sviði kvikmyndagerðar og
framleiðslu sjónvarpsefnis. Fjárhagsáætlun sjóðsins verður áfram sú
sama.
Framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins er ánægður með samkomulagið:
„Við
getum glaðst yfir því að þrátt fyrir fjármálakreppu og niðurskurð í
framlögum til menningarmála þá hefur tekist að tryggja rekstur sjóðsins
með fimm ára samkomulagi og árlegu fjárframlagi sem nemur uþb. 70
milljónum danskra króna. Við teljum það vera viðurkenningu á starfi
sjóðsins. Samstarfslikanið, sem felur í sér að Norræna ráðherranefndin
starfar með bæði norræna kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum, er nefnilega
einstakt á alþjóðavettvangi, en það stuðlar að því að viðhalda
samkeppnishæfni og gæðum í framleiðslunni“, segir Hanne Palmquist, í
tilkynningu.
Samhliða þessu hefur verið hleypt af stokkunum nýju verkefni sem gengur undir heitinu "Nordic High Five" og er ætlað að auka framboð af norrænum myndum. Fimm fyrstu myndirnar hafa verið kynntar í verkefnið og er Brúðguminn eftir Baltasar Kormák íslenska verkefnið þar. Græna ljósið annast íslenska dreifingu á myndum í verkefninu. Sjá frétt á MBL.IS
Fengið af MBL.IS
http://www.nordiskfilmogtvfond.com/