Lesa frétt

Opin samstöðu- og aðgerðafundur íslenskrar kvikmyndagerðar

Sæl öll sömul,

Ráðamenn ríkisins og stjórnendur Ríkisútvarpsins virðast hafa ákveðið að leggja íslenska kvikmyndagerð í rúst.
35% niðurskurður framlaga til kvikmyndasjóða er skemmdarverk á greininni og nú kemur rothöggið frá Rúv; verulega verður dregið úr kaupum á kvikmyndaefni á innlendum markaði.

Með þessu sniðganga stjórnendur RÚV þær skyldur sem þeim eru lagðar á herðar sem og óskir eigenda sinna - og áhorfenda - sem vilja vandað íslenskt efni.

Niðurskurður er óhjákvæmilegur en sanngirni og jafnræði áttu að ráða för. Sexfalt hærri niðurskurður í kvikmyndagerð umfram aðrar listgreinar segir aðra sögu.

Ef það á að jarða íslenskan kvikmyndaiðnað er það stór menningarleg ákvörðun sem ekki er rétt að tekin sé í kyrrþey.
Við köllum eftir samstöðu allra þeirra sem bera hag íslenskrar menningar fyrir brjósti. Við þurfum að sporna gegn þessu eða sitja uppi með mikinn skaða.

Á fundinum á Borginni á mánudagskvöldið verður opinn hljóðnemi þar sem fólk getur tjáð sig um málið og lagt til leiðir til aðgerða. Við skorum á alla þá sem láta sig íslenska kvikmyndagerð og íslenska menningu varða, að mæta og senda frá sér skýr skilaboð.
Það er mikilvægt að bregðast strax við. Þessari þróun verður ekki snúið við nema við stöndum saman og verðum að kraftmiklu sýnilegu afli. Það er verið að gera aðför að íslenskri menningu til framtíðar og við það verður ekki unað.

Baráttukveðjur,

Ragnar Bragason, Björn B Björnsson, Ásgrímur Sverrisson, Ari Kristinsson, Óskar Jónasson, Ottó Geir Borg, Davíð Óskar Ólafsson, Olaf de Fleur , Sigurjón Sighvatsson, Friðrik Þór Friðriksson, Hrönn Kristinsdóttir, Ásdís Thoroddsen,  Skúli  Malmquist, Ólafur Rögnvaldsson, Þórir Snær Sigurjónsson,  Ásthildur Kjartansdóttir, Baltasar Kormákur,  Ari Alexander Ergis Magnússon, Guðbergur Davíðsson, Agnes Johansen, Besti, Sigurður Grímsson, Guðmundur Kristjánsson, Hilmar Sigurðsson, Hrafn Gunnlaugsson, Júlíus Kemp, Konráð Gylfason, Ingvar Þórðarson, Karl Óskarsson, Kristín Atladóttir, Páll Steingrímsson, Anna María Karlsdóttir, Valdimar Leifsson, Lýður Árnason, Hjálmtýr Heiðdal, Magnús Magnússon, Þorsteinn jónsson,  Magnús Viðar, Þorkell Harðarson, Örn Marínó Arnarson, Sveinn M. Sveinsson, Ágúst Guðmundsson, Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, Sæmundur Norðfjörð, Kári Schram, Böðvar Bjarki Pétursson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Snorri Þórisson, Þór Elís Pálsson, Erlendur Sveinsson, Viðar Garðarsson, Steinþór Birgisson,  Þorfinnur Guðnason,  Davíð Pitt, Dagur Kári Pétursson,  Þorsteinn J Vilhjálmsson, Vera Sölvadóttir, Árni Óli Ingólfsson, Huldar Breiðfjörð, Jón Gnarr, Silja Hauksdóttir, Grímur Hákonarson, Harpa Elísa Þórsdóttir.