Lesa frétt

Open Source kvikmyndagerð á Nordisk Panorama 2009

Open Source kvikmyndagerð á Nordisk Panorama 2009
 
Tækniframfarir síðustu ára samhliða nýjum möguleikum í dreifingu kvikmynda hafa breytt fyrir fullt og allt grundvelli kvikmyndagerðar sem hefur hingað til haldist óbreyttur. Hvaða kröfur gerir nýr stafrænn grundvöllur til dreifingaráætlana framtíðarinnar og hvaða áhrif hafa þær kröfur á framleiðsluferli mynda?

Daniel Cross, kanadískur heimildamyndagerðarmaður og prófessor við Mel Hoppenheim School of Cinema í Concordia Háskóla og Brett Gaylor, kvikmyndagerðarmaður og yfirmaður New Media deildarinnar hjá EyeSteelFilm í Montreal, hafa áralanga reynslu í óhefðbundinni dreifingu og framleiðslu. Í nýlegri kvikmyndaframleiðslu RIP Remix Manifesto og með Open Source Cinema samfélaginu, http://www.opensourcecinema.org, var næsta skref tekið inn í stóran og lítt kannaðan heim stafrænnar gagnvirkni þar sem möguleikarnir eru margir og viðfangsefnin ögrandi.

Nordisk Film og TV Fund býður upp á röð viðburða á Nordisk Panorama í Reykjavík 25. – 30. september tengdum Open Source kvikmyndagerð. Dagskráin er sem hér segir:

 
Fyrir útvalda heimildamyndagerðarmenn:

Vinnustofa í Open Source, laugardaginn 26. september klukkan 10-14.         Fimm verkefni verða valin til að taka þátt í ákafasmiðju, þar sem sjónum er beint að þeim skapandi möguleikum og þeim ávinningi í dreifingu sem Open Source býður upp á fyrir verkefnin. Eitt verkefni fær þróunarstyrk að upphæð NOK 50.000. Umsóknarfrestur rennur út 28. ágúst, sjá nánar: http://www.nordiskfilmogtvfond.com/news_story.php?cid=1695&sid=10&ptid=4

Fyrir Nordisk Forum þátttakendur, 28.-29. september:

        Ráðgjöf í Open Source kvikmyndagerð á Nordisk Forum.
Einstaklingsfundir með Dan Cross og Brett Gaylor þar sem  ræddir eru möguleikar þessarar nýju tegundar kvikmyndagerðar.
 
Fyrir þátttakendur á Nordisk Panorama:

Kynning og sýning á heimildamyndinni RIP – Remix Manifesto, mynd sem gerð var úr framlögum þúsunda einstaklinga alls staðar að úr heiminum. Myndin er sýnd tvisvar á hátíðinni laugardaginn 26. september kl. 20 og sunnudaginn 27. september og verður haldin málstofa eftir seinni sýninguna, sem hefst kl. 16.
 
Málstofa um Open Source kvikmyndagerð
Á þessari málstofu verður fjallað um þá heimspeki sem liggur að baki Open Source kvikmyndagerð og hvernig þessi nýja tækni getur veitt nýjar áskoranir og jafnframt auðgað heimildamyndagerð á komandi árum. Teknar verða sem dæmi, myndir sem framleiddar hafa verið undir merkjum Open Source sem og myndir sem eru enn á teikniborðinu.

www.nordiskpanorama.com