Lesa frétt

Nýr starfsmaður SÍK

Stjórn SÍK hefur ráðið Önnu Maríu Sigurjónsdóttur til tímabundinna starfa fyrir sambandið. Anna er þegar tekin til starfa og er hennar meginverkefni að gera upp og annast útgreiðslu á IHM tekjum fyrir SÍK. Anna starfar á skrifstofunni í Túngötu og hún tekur við pósti á netfanginu sik@producers.is
Anna er boðin velkomin til starfa fyrir SÍK.