SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda - auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði SÍK. Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga sjálfstæðir kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndir sem sýndar hafa verið í sjónvarpi á árinu 2011.Umsóknir berist fyrir 27. janúar næstkomandi til:
SÍK - Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda. Hverfisgötu 54, P.O. Box 5367, 125 Reykjavik
eða með tölvupósti á sik@producers.is
Umsóknarfrestur fyrir greiðslur úr IHM sjóði SÍK er til 27. janúar næstkomandi.
Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.
Greitt verður úr sjóðnum um í lok febrúar nk.
Greiðslur þessar eru bætur til kvikmyndaframleiðenda fyrir upptökur á myndum þeirra, þegar þær eru sýndar í sjónvarpi á Íslandi. Sjá nánar á vefsíðu IHM.
Reglur um úthlutun og umsóknareyðublað er að finna hér á síðunni.
Vinsamlegast athugið að það er mikilvægt að fylla umsóknareyðublaðið út með öllum þeim upplýsingum sem beðið er um til að tefja ekki fyrir úrvinnslu gagna.