Lesa frétt

Edduverðlaunin

Frestur til innsendinga kvikmyndaverka til Edduverðlaunanna rennur út 1. desember 2009. Gjaldgeng eru kvikmyndaverk sem frumsýnd eru á tímabilinu 1. nóvember 2008 til 31. desember 2009.
Verðlaunin verða afhent í janúar 2010.

Verkunum skal skilað til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands að Túngötu 14 í Reykjavík ásamt fylgiblaði og kvittun fyrir greiðslu innsendingargjalds.

Hverju innsendu verki skal fylgja útfyllt eyðublað sem er að finna á vefnum www.logs.is eða hér á vef SÍK.

Sérstök athygli er vakin á nýjum verðlaunaflokki; BARNAEFNI ÁRSINS.

Allar nánari upplýsingar og reglur er að finna á www.logs.is

Jafnframt er hægt að sjá fréttabréf hér á vef SÍK með reglum og öðru sem lítur að Edduverðlaununum.