Lesa frétt

Drama TV Directory

Ágætu kvikmyndagerðarmenn!!

Eins og velflestir kvikmyndagerðarmenn vita hafa samtökin European Documentary network (EDN: www.edn.dk) tekið saman bæklinginn Documentary financing guide sem allir meðlimir samtakanna hafa aðgang að upplýsingum um kaupendur hjá evrópskum sjónvarpsstöðvum á heimildarmyndum.  Þessi bæklingur e hið mesta þarfaþing þegar kemur að því að (for)selja heimildarmyndir í Evrópu.  Lengi hefur verið talað um að slíkan bækling vantaði fyrir kaupendur á leiknu sjónvarpsefni.  Nú hafa MEDIA skrifstofur í nokkrum Evrópulöndum tekið saman slíkar upplýsingar og hér meðfylgjandi er afraksturinn af þeirri vinnu okkar.  Það er ós okkar að við fáum fleiri MEDIA skrifstofur í Evrópu með í starfið á næstu árum.

Vona ég að þetta nýtist ykkur vel og með því dreifist íslenskar myndir til enn fleiri landa.

Bestu kveðjur
Sigríður Margrét Vigfúsdóttir

MEDIA DESK ICELAND/ MEDIA upplýsingaþjónusta á Íslandi


Hægt er að nálgast bæklinginn hér.