Lesa frétt

ÁLYKTUN

Opinn samstöðufundur um íslenskrar kvikmyndagerð, haldinn á Hótel Borg mánudagskvöldið 25. janúar, fordæmir þann ójöfnuð sem kemur fram í 35% lækkun framlaga til kvikmyndasjóða á fjárlögum 2010, sem er fordæmislaus niðurskurður á íslenskum menningariðnaði.

Jafnframt fordæmir fundurinn hótanir stjórnenda RÚV um að draga verulega úr innkaupum á íslensku efni. Með slíkum aðgerðum brjóta stjórnendur RÚV þær menningarlegu- og lagalegu skyldur sem þeim eru lagðar á herðar, sem og óskir eigenda sinna og áhorfenda - sem vilja vandað íslenskt efni.

Treysti stjórnendur RÚV sér ekki til að reka almannaútvarp og sjónvarp samkvæmt lagaramma og vilja þjóðarinnar, þá ber Páli Magnússyni og öðrum yfirmönnum RÚV að segja af sér hið fyrsta.

- - -
Ályktun þessi var samþykkt með dynjandi lófataki á þessum samstöðufundi