Lesa frétt

Áheyrnaprufur FÍL

Hinar árlegu áheyrnarprufur FIL og FLÍ í samvinnu við Þjóðeikhúsið, LR,LA, og SL, fara fram mánudaginn 6 apríl. kl 18.00 á stóra sviði Þjóðleikhússins.

Fyrst vinna þáttakendur senur með leikstjórum í ca 90 mín. Sú vinna hefst kl 16.30.  Afrakstur senu vinnunar er sýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins frá kl. 18:00 – 20:00 en þær enda á eintali/söng sem þáttakendur velja sjálfir. ATH! Allir verða að mæta bakdyrameginn hjá dyraverði (Lindargötu meginn).

Eftir það verður boðið uppá léttar veitingar á Smíðaverkstæðinu, þar sem þáttakendum og áhorfendum gefst tækifæri á óformlegu spjalli.  

Vinsamlegast tilkynnið þáttöku í síðasta lagi föstudaginn 3. apríl á fil@fil.is

Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Kveðja
Björn Ingi
Framkvæmdastjóri FÍL