Boðað er til aðalfundar SÍK fimmtudaginn
20. október 2011 kl. 18:00
Stjórn SÍK boðar til aðalfundar Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda fimmtudaginn 20. október 2011 kl. 18:00 á Hótel Plaza við Ingólfstorg.
Dagskrá skv. lögum SÍK:
1. Lögð fram kjörgögn.
2. Inntaka nýrra félaga
3. Skýrsla stjórnar.
4. Reikningar félagsins lagðir fram endurskoðaðir.
5. Lögð fram skrá um kvikmyndaverk til samþykktar.
6. Lagabreytingar
(tillaga lagabreytinganefndar eru hér og breytingatillaga sem hefur borist er aðgengileg hér)
7. Ákvörðun um hvort hækka eigi árgjald.
8. Stjórnarkjör (stjórn var kjörin til tveggja ára á síðasta aðalfundi)
9. Kjör endurskoðenda
10. Önnur mál
Fundurinn mun fara fram undir borðhaldi.
Rétt til setu á fundinum eiga að hámarki tveir fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem eru skuldlaus við SÍK viku fyrir aðalfund sbr. lög sambandsins, sem eru birt á vef SÍK
7.0.
Árgjald skal að lágmarki vera 25.000 kr. Árgjald má ekki lækka eða fella niður nema með lagabreytingu. Hækkun á árgjaldi skal samþykkt á aðalfundi. Gjalddagi þess skal vera 1. janúar á hverju ári, en í síðasta lagi viku fyrir aðalfund.
7.1.
Þau aðildarfélög sem ekki hafa greitt árgjald, samkvæmt framansögðu, verða óvirk aðildarfélög. Óvirk aðildarfélög hafa ekki atkvæðisrétt, kjörgengi eða rétt til fundarsetu, en halda öðrum réttindum aðildarfélaga. Óvirk aðildarfélög geta endurnýjað aðild sína með greiðslu árgjalds sbr. grein 7.0. og hafið á ný fulla þátttöku í félaginu.
Aðildarfélög er vinsamlegast beðin um að senda stjórn leiðréttingar á heimilsföngum og öðrum upplýsingum aðildarfélaga, eins og kennitölum, tölvupóstföngum og símanúmerum.
Stjórn SÍK