Lesa frétt

Samstarfsvettvangur tónlistar- og kvikmyndaréttahafa stofnaður

SÍK, IHM, STEF, FHF, SMÁÍS og SFH hafa stofnað með sér samstarfsvettvang tónlistar- og kvikmyndarétthafa til að vinna gegn ólöglegri notkun höfundarréttarvarins efnis. Stofnfundur var haldinn þann 12. október sl. þar sem m.a. var samþykkt aðgerðaráætlun fyrir samtökin.

Megininntakið í samstarfinu er að verja höfundarrétt og mun SMÁÍS fara fyrir daglegu starfi. Þannig er rétthöfum innan aðildarfélaganna bent á að tilkynna beint til SMÁÍS um höfundarréttarbrot á netfangið ss@smais.is og munu fyrstu aðgerðir verða framkvæmdar þaðan. Sent verður bréf á viðkomandi brotaaðila þar sem honum verður gerð grein fyrir brotinu. Beri það ekki árangur, mun málinu verða skotið til lögregluyfirvalda og í kjölfarið kannað að fara í einkamál í samráði við stjórn samstarfsvettvangsins.

Samhliða þessu fer í gang vinna við að koma á betra innlendu samstarfi við aðila eins og Einkaleyfastofu, ráðuneyti og tollayfirvöld, ásamt því að efna til samráðs við þjónustuveitur sem veita notendum aðgang að netinu.

Því er beint til aðildarfélaga í SÍK and senda tölvupóst á ss@smais.is til að tilkynna um brot um notkun á höfundarréttarvörðu efni.