Lesa frétt

Óskar inn, EDDAn og ÍKSA

Reykjavík-Rotterdam í Óskarinn

Kvikmyndin Reykjavík-Rotterdam verður framlag Íslands til forvals Óskarsverðlaunanna um Bestu erlendu mynd ársins. Myndin verður send til Los Angeles fyrir 1. október þar sem fram fer forval vegna Óskarsverðlaunanna sem afhent verða sunnudagskvöldið 7. mars 2010.
 

Eddan í ársbyrjun

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hefur ákveðið að Edduverðlaunahátíðin verði haldin í byrjun næsta árs.  Þar verða veitt verðlaun fyrir kvikmynda- og sjónvarpsefni ársins 2009. Fram til þessa hefur hátíðin verið haldin í nóvember og miðað við frumsýningatímabil frá nóvember til nóvember ár hvert.  Eddan er með breytingunni orðin samstíga erlendum kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunum með því að miða við almanaksárið, þegar veitt eru verðlaun fyrir kvikmynda- og sjónvarpsefni ársins. Það efni sem kemur til greina við næstu Edduverðlaun verður því það sem frumsýnt hefur verið á 14 mánaða tímabili; frá 1. nóvember 2008 til 31. desember 2009. Eftir það verður miðað við almanaksárið.
 

Ný stjórn ÍKSA

Ný stjórn ÍKSA er þannig skipuð: Formaður: Björn B Björnsson. Gjaldkeri: Hilmar Sigurðsson. Ritari: Hjálmtýr Heiðdal. Aðrir í stjórn eru: Ásgrímur Sverrisson, Friðrik Þór Friðriksson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Laufey Guðjónsdóttir.