Kynningarfundur um endurgreiðslu til kvikmynda
Hefur þú eða þitt fyrirtæki hætt við að sækja um endurgreiðslu frá Iðnaðarráðuneytinu vegna framleiðslukostnaðar á framleiðslu kvikmyndar, heimildarmyndar eða sjónvarpsþáttar? Hefur þér fundist þetta of flókið eða verið í vafa hvort að þitt verkefni eigi yfirhöfuð rétt á endurgreiðslu?
Föstudaginn 8.maí kl. 12 verður haldin upplýsinga og kynningafundur í sal Þjóðminjasafnsins um svo kallaða 14% endurgreiðslu, þ.e. lög og reglur sem varða endurgreiðslu á framleiðslukostnaði vegna framleiðslu kvikmynda bæði leikins efnis, heimildamynda og/eða sjónvarpsefnis á Ísland. Lögfræðingur Iðnaðarráðuneytisins Guðrún Þorleifsdóttir og Sigurrós Hilmarsdóttir Kvikmyndamiðstöð sem þekkja þessa löggjöf hvað best munu kynna lögin og þær breytingar sem hafa orðið á þeim nýverið, m.a. hækkun á endurgreiðsluhlutfallinu í 20%. Þær munu m.a. ræða yfir hvaða eða hvers konar verkefni eiga rétt á endurgreiðslu, hvernig staðið er að umsókn og utanumhald á verkefninu þar til því er lokið.
2.4.2009 -
Hilmar Sigurdsson