Lesa frétt

Ný stjórn SÍK kjörin á aðalfundi 15. desember

Á aðalfundi SÍK þann 15. desember 2008 var lögum sambandsins breytt umtalsvert. Fyrir fundinum lágu tvær mismunandi tillögur til lagabreytinga og eftir vinnu á fundinum var komist að samkomulagi um nokkur atriði sem mismunandi voru í hvorri tillögu fyrir sig. Helstu breytingar í lögum félagsins voru í tengslum við aðildarskilyrði, auk þess sem tekið er nú á skiptingu tekna sem Innheimtumiðstöð gjalda og félög í SÍK eiga rétt á að fá hluta af, ásamt því að ýmsir agnúar eldri laga voru lagfærðir. Eftir að búið var að breyta lögum, var ný stjórn SÍK kjörin en hægt er að sjá hverjir sitja í henni hér á síðunni.