ÚTÓN stendur fyrir fræðslukvöldi þann 7. apríl nk. með Ariel Hyatt en hún sérhæfir sig alfarið í almannatengslum á veraldarvefnum. Með alla þræði í hendi er yfirskrift kvöldsins en þar verður fjallað um helstu tæki á netinu sem fólk getur nýtt sér til að efla skipulagða kynningu og auka tekjur af verkefnum sínum. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
1. Hvernig á að búa til ódýra og góða vefsíðu
2. Hvernig nýtirðu samfélagssíður best
3. Hvernig býrðu til póstlista
4. Hvernig skilgreinirðu verkefnið þitt á 15 sekúndum
5. Hvert er gildi þess að senda frá sér fréttabréf
6. Hvernig er best að gera fréttabréf
7. Hvernig kemurðu netsölu á laggirnar
8. Hvernig nýtast almannatengsl best
9. Hvernig virka bloggheimar og hvernig nýtast þeir verkefnum best
10. Hvenær er tímabært að ráða fólk til að sjá um almannatengsl
Ariel hefur á undanförnum vikum veitt 25 íslenskum tónlistar- og menningarverkefnum vegvísi um veraldarvefinn á 9 vikna námskeiði sem fram fer á netinu. Það var Derek Sivers stofnandi CD Baby sem kom ÚTÓN í samband við Ariel til að fylla skarð hans þegar hann komst ekki á ráðstefnuna, You are in Control, sl. haust. Derek sagðist fáa þekkja sem hefðu jafnmikið innsæi inn í hvernig veraldarvefurinn virkar þegar hann mælti með henni til að taka sitt sæti. Ariel hefur starfað með tónilstarmönnum, rithöfundum og kvikmyndagerðarfólki.
Sjá meira um Ariel og fyrir tæki hennar á vefsíðunni:
http://arielpublicity.com/ariel_about_the_team.php
Þetta fræðslukvöld nýtist öllum þeim sem starfa sem listamenn eða vinna að því að koma list og afþreyingarefni á framfæri.
Fræðslukvöld ÚTÓNs fer fram í Norræna Húsinu að vanda. Þátttökugjald er 2500 krónur fyrir félagsmenn FÍH, FTT, FÍT, TÍ og FHF og 5000 krónur fyrir aðra.
Frekari upplýsingar veitir Anna Hildur 8244371 –
anna@icelandmusic.is
Skráningar fara fram hjá Gretu í síma 5114000 eða
greta@utflutningsrad.is