Frumvarp um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna
kvikmyndagerðar hér á landi hefur verið samþykkt á Alþingi.
Þessi hækkun hefur mikil áhrif fyrir kvikmyndagerð á Íslandi og er
fagnaðarefni fyrir kvikmyndaframleiðendur. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi með öllum greiddum atkvæðum og virtist almenn sátt ríkja um það. Eftir þessar breytingar á frumvarpinu, nema endurgreiðslur af kostnaði sem fellur til innanlands vegna kvikmyndaframleiðslu nú 20%, í stað 14% áður. Iðnaðarráðuneytið fer með þessi mál og á heimasíðu ráðuneytisins
má finna allar upplýsingar um það.