Við þekkjum þær allar: Taxa, Rejseholdet, Nikolaj & Julie, Forsvar, Krøniken, Ørnen, Forbrydelsen, Anna Pihl, Sommer ...
En hvað veldur því að þessar sjónvarpsseríur ná þeirri tengingu við áhorfendur sem raun ber vitni? Hvað eiga þær sameiginlegt? Hvað skilur þær að?
Á námskeiðinu verður farið í gegnum söguna og þær forsendur og pælingar sem liggja að baki þeirri gullöld í leiknu sjónvarpsefni sem Danir hafa gengið í gegnum frá því um miðjan níunda áratuginn.Sýnd verða brot úr þáttaröðunum og dæmin notuð til að benda á þær aðferðir sem beitt er. Eins er gert ráð fyrir að tengja umfjöllunina við það sem verið hefur að gerast hérlendis á síðustu árum á þessu sviði.
Danski handritshöfundurinn Dorte W. Høgh (Anna Pihl, ofl.) mun koma í heimsókn og fjalla sérstaklega um hina vinsælu þáttaröð um lögreglukonuna.
Sveinbjörn I. Baldvinsson hefur starfað sem handrits-höfundur við tvær danskar þáttaraðir, Taxa (Leigubílastöðin) og Forsvar (Málsvörn), auk þess að skrifa handrit að íslenskum seríum (Mannaveiðar, Hamarinn) og bíómyndum (Tár úr steini, Foxtrot). Hann hefur einnig kennt handritsgerð víða um Evrópu og hér heima.
Kennari: Sveinbjörn I. Baldvinsson, rithöfundur
Tími: mið. 11. mars - 1. apr. kl. 20:15 - 22:00 (4x)
Verð: 16.500 kr.
Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7.
Nánari
upplýsingar og skráning hér eða í síma 525-4444.