Lesa frétt

Endurgreiðsla hækkuð í 20%!

Samkvæmt tillögum Ríkisstjórnar sem kynntar voru föstudaginn 6. mars 2009, þá er lagt til að hlutfall tímabundinnar endurgreiðslu vegna kvikmyndaframleiðslu hækki úr 14% í 20%. Þessi ráðstöfun er talin geta skapað um 120-150 störf fljótlega á Íslandi. Þau munu hafa víðtæk áhrif fyrir kvikmyndagerðarmenn sem eru með stærri verk á prjónunum, auk þeirra sem eru að þjónusta við erlenda kvikmyndagerð á Íslandi. Óhætt er að segja að þessi hækkun sé löngu tímabær. Á Írlandi er "Section 481" allt að 28% af framleiðslukostnaði og t.d. í Ungverjalandi hefur þetta hlutfall verið 20% um skeið. Þessi ráðstöfun gerir Íslenska kvikmyndagerð enn samkeppnishæfari.