17. febrúar 2009 15:20
To: 'ari@taka.is'
Subject: Kynningarfundur: Þjónustumiðstöð kvikmyndaiðnaðarins
Ari Kristinsson formaður
Stjórn Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðenda
Sælir stjórnarmenn,
Með bréfi þessu vil ég bjóða stjórn SÍK til kynningarfundar um Þjónustumiðstöð kvikmyndaiðnaðarins.
Föstudaginn 20. febrúar klukkan 14.00 verður haldinn kynningarfundur um Þjónustumiðstöð kvikmyndaiðnaðarins sem nú er í undirbúningi í Víkurhvarfi 1 í Kópavogi.
Hér er um að ræða rúmlega 4000 fm húsnæði þar sem byggð verða þrjú upptökustúdíó, stór leikmyndageymsla, hljóðver, myndver, 200 sæta bíósalur, smíðaverkstæði, búningageymsla, smink, mötuneyti. Þjónustumiðstöðin verður rekin við hlið Kvikmyndaskóla Íslands sem er nú að flytjast í húsnæðið.
Framkvæmdir við Þjónustumiðstöðina eru þegar hafnar og stefnt er það því að hún hefji formlega starfsemi 1. júní næstkomandi og að húsnæðið verði að fullu tilbúið 1. september.
Þjónustumiðstöðin er hlutlaus aðili á markaði sem mun þjónusta allar sjónvarpsstöðvar og kvikmyndafyrirtæki á Íslandi.
Starfræksla Þjónustumiðstöðvarinnar mun gjörbylta aðstöðu kvikmyndagerðarmanna til framleiðslu á kvikmyndum og sjónvarpsefni, enda er miðstöðinni ætlað að stuðla að stórfelldri eflingu greinarinnar.
Á kynningarfundinum er ætlunin að fjalla fyrirliggjandi hönnun á húsnæðinu og viðbrögð við henni. Einnig er ætlunin að kynna verðskrá miðstöðvarinnar.
Það væri okkur mjög mikilvægt ef þið sæjuð ykkur fært að mæta, til að meta aðstæðurnar og til að fá ykkar sjónarhorn á framkvæmdina.
Á fundinn eru boðaðir stjórnendur allra sjónvarpsstöðvanna á Íslandi, fulltrúar fagfélaga kvikmyndagerðarmanna, stjórnendur stærstu framleiðslufyrirtækjanna, fulltrúar Kvikmyndamiðstöðvar og menntamálaráðuneytis.
Nú ríður á að allir standi saman við að treysta stoðir greinarinnar, þannig að við getum nýtt mótvindinn til að stórefla greinina.
Kynningarfundurinn hefst klukkan 14.00 og stendur yfir í rúman klukkutíma. Léttar veitingar í boði.
Vonast til að sjá ykkur og mér þætti vænt um ef þið mynduð láta vita hvort þið komist
Virðingarfyllst
Böðvar Bjarki Pétursson framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöð kvikmyndaiðnaðarins.