Sjónvarp á netinu
Sjónvarp á netinu
Miðvikudag 28. apríl var formlega opnaður sjónvarpsvefur á heimasíðu Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Á vefnum verður hægt að sjá ýmislegt kvikmynda- og sjónvarpsefni sem framleitt er af nemendum skólans. Á vormisseri unnu nemendur kvikmyndaáfangans BÍÓ213 að uppsetningu á fundarröð í skólanum sem voru settir upp eins og sjónvarpsþættir. Fyrri þátturinn af „Upp úr skotgröfunum " fjallaði um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar og sá síðari um hvort lögleiða eigi spilavíta á Íslandi. Er nú hægt að sjá fyrri þáttinn á vefsíðu skólans, en sá síðari mun birtast fljótlega; http://www.fa.is/sjonvarp.
Verkefnið er undir handleiðslu Þórs Elís Pálssonar kvikmyndagerðamanns, snýr það að upptöku og vinnslu á sjónvarpsefni. Gestir fyrri þáttarins voru Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, Páll Magnússon, útvarpsstjóri, Ragnar Bragason, leikstjóri og Hrönn Kristinsdóttir, framleiðendi. Markmið verkefnisins var að stuðla að málefnalegri umræðu um framtíð kvikmyndagerðar hérlendis.
Fundarstjórar/þáttastjórnendur voru Þorfinnur Ómarsson og Gylfi Þór Sigurðsson, nemandi við skólann.
Allar spurningar fjölmiðla beinast að hópnum, kvikmyndaspjall@gmail.com eða í síma 770-2010.
Fundinn/sjónvarpsþáttinn má sjá á http://www.fa.is/sjonvarp
3.5.2010 -
Hilmar Sigurdsson